Færsluflokkur: Bloggar

eTwinning starfsþróunarvinnustofa í Poitiers Frakklandi 1.-3. apríl 2016

 

 

Við erum tvær sem fengum styrk til að fara á eTwinning vinnustofuna í Poitiers Frakklandi. Báðar erum við grunnskólakennarar þó í sitthvorum skólanum og sitthvoru bæjarfélaginu og þekktumst ekkert fyrir ferðina. Við byrjuðum á að spjalla á facebook og síðan ákváðum við að hittast til að panta okkur lestarferðir og hótel í París. Frá fyrstu kynnum náðum við vel saman og má með sanni segja að það sé eins og við höfum þekkst í einhver ár smile

Þá er það ferðin sjálf:

Þann 31. mars fórum við með flugrútunni til Keflavíkur þar sem við áttum flug kl. 7:45 um morguninn. Ferðin gekk mjög vel og lentum við um hálftvö á Orly flugvelli í París. Þar fundum við flugrútu sem við tókum á Montparnasse lestarstöðina í París og gekk allt mjög vel. Því miður vorum við svo óheppnar að einmitt þennan dag var verkfall í lestarkerfinu í Frakklandi og því féll niður lestarferðin okkar, sem átti að vera kl. 18:00. En gátum við tekið fyrri lestina til Poitiers en hún fór kl. 17:46 og er óhætt að segja að það hafi verið vel stappað í hana. Neyddumst við að standa í 2 klst þar sem engin sæti voru laus og vorum því fegnar þegar við settumst inn í leigubílinn í Poitiers sem keyrði okkur á hótelið í Futuroscope þar sem allir þátttakendur gistu á. Sofnuðum við því vært eftir langan og erfiðan dag.

20160402_105457Föstudaginn 1. apríl hófst dagskráin en hún hófst kl. 15:00 með innritun og kaffihlaðborði. Kl. 16:00 var kynning og upplýst um að þátttakendur kæmu frá 23 löndum. Fyrsti fyrirlesturinn hófst kl. 16:30 en hann bar nafnið: „Digital Citizenship and Media Literacy Education – Two of a kind?“ Eftir hann var komið að hópefli og var farið í þrjá mismunandi leiki sem allir lifðu sig vel inn í. Að lokum var haldið í kvöldverð og var mikið spjallað og hlegið.

20160402_093721Laugardagurinn 2. apríl rann upp og var mikil dagskrá framundan. Ásamt fyrirlestrum var boðið upp á vinnustofur og skráðum við okkur á þær sem vöktu mestan áhuga hjá okkur. Ein vinnustofa var fyrir hádegi og önnur eftir hádegið.

Við skráðum okkur á vinnustofuna „How to create and safely share online videos in the twinspace". Þar notuðum við forritið Moovly til að búa til stutt myndband og settum það síðan á twinspace og skráðum það þar sem unlisted.

Eftir hádegi fórum við síðan á vinnustofuna „Web-documentary: an original way of presenting your town". Þar lærðum við að gera web-documentary og allt um hvað það er.

20160402_172954Við enduðum daginn á því að skoða okkur um í Futuroscope garðinum þar sem boðið var upp á alls konar vísindasýningar eins og 3víddar bíósýningar, himintunglasýningu og fleira. Mikil röð var á alla atburði og við höfðum lítinn tíma svo að við komumst nú ekki á margar. Rútan beið og við fórum út að borða á mjög 20160402_194629glæsilegt veitingahús sem hefði hæft kóngafólki. smile 

Sunnudaginn 3. apríl fórum við síðan á síðustu málstofuna sem bar yfirskriftina „eSafety for eTwinners". Þetta var mjög gagnlegt og vakti mann til umhugsunar um netið almennt og notkun þess.

Að lokum var stutt umfjöllun um „New tools for eTwinners“ og var talað um eTwinning Live –Twinspace og hvernig það getur nýst okkur í verkefnum okkar.

Að því loknu tókum við lestina til Parísar og áttum frábæran seinnipart í þessari hámenningarborg þar sem meðal annars Eiffelturninn og Sigurboginn voru bornir augum. Heimflugið gekk að mestu vel daginn eftir.

Við þökkum kærlega fyrir að hafa fengið að fara á þessa ráðstefnu og erum við báðar komnar með nýja vini og tengiliði. Önnur okkar ætlar að stofna Erasmus verkefni með nokkrum löndum næsta ár, en þar sem við erum báðar í eTwinning verkefnum eins og stendur vildum við ekki stofna nýtt að svo stöddu (gerist 20160401_194806örugglega á næsta skólaári).

 

Kærar þakkir

Hlíf og Anna

 

 

 

 

 


eTwinning ráðstefna í Brussel - október 2015

Frásögn Ingva Hrannars Ómarssonar, eTwinning sendiherra á Norðurlandi vestra, af eTwinning ráðstefnunni í Brussel, 22-24. október 2015.

"Ég kom til baka með nokkrar gagnlegar hugmyndir sem við ætlum okkur strax að nota, t.d. forritun án tölvu (sem grunnverkefni), erum að vinna í Erasmus+ umsókn um frumkvöðlakennslu og svo erum við að ræða heilmikið um markmið tækni og skólastarfs útfrá síðustu vinnustofunni. Í heildina var þetta mjög góð ferð sem ég myndi ekki hika við að endurtaka ef færi gæfist á."

Sjá bloggfærsluna í heild sinni hér.


Nýsköpun í Madríd

Blogg_myndÞað voru tveir íslenskir kennarar sem sóttu  Madrid heim dagana 12.-14. nóvember s.l. þegar haldin var í fimmta skipti eTwinning starfsþróunarvinnustofa fyrir spænskumælandi kennara þar í borg. Alls voru 120 þátttakendur frá 12 þjóðlöndum mættir á vinnustofuna sem að þessu sinni fjallaði um hvernig rækta má nýsköpunarverkefni með eTwinning.

Fyrirkomulag vinnustofunnar var á þann veg að eftir formlega skráningu fyrsta daginn þá var haldin kynning  á eTwinning verkefnum auk þess sem skemmtilegur fyrirlesari fjallaði um möguleika eTwinning í skólastarfi. Annar dagurinn hófst með  mjög áhugaverðum fyrirlestri um getu nemenda til náms útfrá sjónamiðum taugafræðinnar en fyrirlesturinn byggðist á rannsókn taugasérfræðinga. Eftir það tók við vinna í smiðjum  sem voru fimm tallsins (farnám, spegluð kennsla, gerð verkefna og þróun í tengslum við eTwinning, leikjavædd kennsla og skynjun) en hver þátttakandi gat valið að skrá sig í þrjár smiðjur. Þriðja og seinasta daginn unnum við í hópum eftir kennslu- og áhugasviðum þar sem markmiðið var að setja upp verkefni.  Hver hópur hélt síðan stutta kynningu á verkefninu sínu undir lok vinnustofunnar.

Allt skipulag og uppbygging vinnustofunnar var til fyrirmyndar og erum við þakklátar fyrir að fá tækifæri til að kynnast nýjum aðferðum í kennslu sem mætir þörfum nýrra tíma.  Með tækninni hafa opnast möguleikar til náms þvert á aðstæður sem m.a. birtist í auðveldu aðgengi að upplýsingum, nýjum leiðum til samskipta, samvinnu og fl. Það er því afar mikilvægt fyrir okkur að vera með puttann á púlsinum svo við getum þróað kennslu í takt við þessar breytingar. Með þátttöku á vinnustofunni fengum við að auki tækifæri til að hitta fólk og mynda tengsl sem er að okkar mati ekki síður mikilvægt og hlökkum við til að takast á við ný og spennandi verkefni í framtíðinni. 

Takk fyrir okkur.

Harpa og Hilda


Fjórir flugvellir, þrjár flugvélar, tvö hótel, ein rúta og e twinning - Ferð á vinnustofu í Ohrid, Makedóníu

logo GS

 

logo ET

                                                          

 

 

Tilgangur ferðarinnar

Dagana 20. – 23. nóvember var haldin vinnustofa við Ohrid vatn í Makedóníu. Undirritaðar tvær kennslukonur frá Garðaskóla í Garðabæ lögðu því land undir fót í von um að kynnast nýjum kennsluaðferðum og kennurum frá hinum ýmsu Evrópulöndum með sameiginleg markmið um starfsþróun og samvinnu í sífellt minnkandi rafrænum heimi.

 

Ferðalagið

Ferðalagið til Ohrid (borið fram Okrid) í Makedóníu frá Íslandi er, eins og titill þessarar færslu gefur til kynna, í flóknara og lengra lagi en oft má mikið á sig leggja ef tilgangurinn er góður eins og í þessu tilviki. Við afrekuðum til dæmis að vera í fjórum löndum á einum degi, á leiðinni út og heim með því að hefja flugið frá Keflavíkurflugvelli, millilenda í London og Róm og lenda að lokum í Skopje, höfuðborg Makedóníu. Þaðan er svo þriggja tíma ferðalag í bíl um fallegt landslag að Ohrid vatni.

 Staðsetning OhridOhrid myndkort

 

 

 

 

 

 

 

 

                

 

Skipulag og þátttaka

Skipulagning vinnustofunnar, sem haldin var á 10 ára afmæli e twinning, var í höndum menntamálayfirvalda í Makedóníu og Tyrklandi og komu þátttakendur frá 19 löndum. Áhersla var lögð á að þarna væri samvinnuvettvangur fyrir kennara frá Evrópu til þess að ræða það sem þeir hafa verið að gera, fá nýjar hugmyndir að verkefnum, öðlast aukna færni í að nýta tækni í kennslu og síðast en ekki að mynda tengsl og að leggja grunn að nýjum fjölþjóðlegum samstarfsverkefnum kennara.

 

Vinnustofunni var skipt í fernt þar sem lagt áhersla var lögð á mismunandi þætti:

  • Notkun tækni í kennslustofunni.
  • Samvinnuverkefni þvert á landamæri með því að nota tækni og frjótt ímyndunarafl
  • Notkun tölvuleikja í kennslu
  • Tæknimöguleikar og færni í notkun tækni í skólastarfi á 21. öld

Eins og gefur að kynna voru kynnt helstu verkfæri, tæki og forrit, sem gagnast í kennslu.

 

Aukin fjölþjóðleg samvinna með e twinning

Fram kom að núna vinna um 330.000 kennarar að verkefnum í Evrópu og eru um 45.000 verkefni í gangi. Hér er því um að ræða stærsta samfélag kennara í Evrópu og er einn megin ávinningurinn sá að kennarar sem skrá sig í e twinning eru ekki lengur einir í sinni kennslustofu. Með því að nýta þá tækni sem í boði er í nútíma samfélagi, býðst okkur að vinna saman ekki bara þvert á námsgreinar innan sama skóla, heldur þvert á þjóðfélög, menningarheima og trúarbrögð svo eitthvað sé nefnt.

Sigga og Halla í Ohrid

 

 

 

 

 

Undirritaðar ásamt dönskum samkennara

 

E twinning og nemendur

Ekki má gleyma nemendunum sem notið hafa góðs af e twinning verkefnum, en talið er að þeir séu um tvær milljónir. Í sumum tilvikum eru þetta börn og ungmenni sem aldrei hafa fengið tækifæri til þess að fara út fyrir sitt heimahérað og fá með aðstoð tækninnar tækifæri til þess að „ferðast“ inn í kennslustofur í öðrum löndum og kynnast fjölþjóðlegum nemendahópi.

 

Hlutverk kennara og nemenda í e twinning verkefnum

E twinning gefur nemendum tækifæri á að vinna að áþreifanlegum verkefnum, þ.e. gera eitthvað við það sem þeir hafa lært. Nemendur geta líka, með aðstoð tækninnar, rannsakað ýmislegt á raunsæan hátt sem ekki er svo auðvelt að skoða í raunheimi kennslustofunnar, t.d. skoðað inn í mannslíkamann.

 

Mikilvægt er að kennarar noti þó ekki tækni tækninnar vegna, heldur verður tæknin að þjóna aðal tilganginum, þ.e. að fræða nemendur og gera þá að virkum þátttakendum í sínu námi. Verkefnin þurfa að hafa tilgang og skýr markmið svo að nemendur upplifi innri hvata. Nemendur verða að vita frá upphafi til hvers þeir eru að vinna verkefnið. Kennarar eiga ekki að hafa svar við öllum spurningum eða hafa óþrjótandi þekkingu, heldur hjálpa nemendum að spyrja spurninga sem þeir svo sjálfir leita svara við. Með því þjálfa nemendur gagnrýna hugsun og upplifa aukinn tilgang sem svo aftur ýtir undir innri hvata þeirra til þess að læra meira. Með aukinni samvinnu á milli kennara og nemenda í mismunandi löndum, sameinast líka þekking margra og mun fleiri spurningum er svarað. Það má því segja að allir græði á fjölþjóðlegri samvinnu kennara og nemenda.

 

Ferðalok og næstu skref

Við teljum okkur vera margs vísari eftir þessa stuttu heimsókn til Makedóníu. Við komum til baka með mun fleiri verkfæri í verkfærakistunni en við lögðum af stað með. Það hefur líka fjölgað í samstarfsfélagahópinum. Við mynduðum tengsl sem gáfu okkur hugmyndir að mögulegum samstarfsverkefnum og lögðum grunn að samstarfsverkefni á milli okkar skóla og skóla í Hillerød í Danmörku. Markmiðið er að koma á tengingu á milli nemenda skólanna í þeim tilgangi að íslensku og dönsku nemendurnir geti með aðstoð tækninnar miðlað þekkingu sín á milli:

  • Íslenskir nemendur fá tækifæri til þess að æfa sig að tala dönsku við danska nemendur sem gerir það vonandi að verkum að nemendur upplifa dönskunámið á áþreifanlegan hátt og sem hagnýtt.
  • Danskir nemendur fá tækifæri til þess að ígrunda sitt móðurmál í þeim tilgangi að undirbúa dönskukennslu fyrir íslenska nemendur.
  • Íslenskir nemendur fá tækifæri á að undirbúa fræðslu fyrir danska nemendur um sögu Íslands og bókmenntir sem byggir á þeirra námi í samfélagsfræði og íslensku. Þeir verða þannig að ígrunda sitt nám í þessum greinum vel svo að fræðslan verði markviss. Í þeim tilvikum sem fræðslan fer fram á ensku, fá bæði íslensku og dönsku nemendurnir tækifæri á að spreyta sig i samræðum á ensku.

Allt hangir þetta náttúrulega á því að kennarar í þeim fögum sem að þessu myndu koma (dönsku, ensku, íslensku og samfélagsfræði) séu tilbúnir að leggja verkefninu lið, en að okkar mati hljóta allir að græða á slíkri samvinnu.

 

Við hlökkum til að taka næstu skref!

 

Halla Hrafnkelsdóttir Thorlacius, deildarstjóri ensku í Garðaskóla

Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, ensku- og þýskukennari í Garðaskóla


Áhugaverð heimsókn í eTwinning móðurskip

Frásögn Tryggva Thayer, verkefnisstjóra Menntamiðju, af eTwinning ráðstefnunni í Brussel, 22-24. október 2015.

"Á heildina litið var ég mjög heillaður af því hvað kennarar sem ég hitti á ráðstefnunni eru skapandi og áhugasamir um notkun tækni í námi og kennslu. Einnig sýna viðburðir eins og þessi hvers virði Evrópusamstarfið í skólamálum, eins og öðrum, er mikilvægt fyrir okkur. Viljinn til að vinna saman og leita nýrra leiða til að gera nám gagnlegra og áhugaverðara fyrir nemendur á öllum aldri sem ég varð var við er einstaklega aðdáunarverður. Kostir áætlunar eins og eTwinning eru greinilega miklir og margþættir. Ég vona að íslenskir kennarar verði áfram duglegir að nýta sér þau tækifæri sem þær veita til samstarfs um nýja landvinninga í ört breytileikum heimi."

Sjá bloggfærsluna í heild sinni hér.


eTwinning ráðstefna í Brussel 22. - 24. október 2015

Það voru glaðværir ferðalangar sem hittust á Keflavíkurflugvelli snemma morguns fimmtudagsins 22. október. Þarna voru á ferðinni 5 kennarar frá Hafnafirði-Vík-Grindavík-Bolungarvík- Sauðakróki og 2 verkefnisstjórar eTwinning á Íslandi og voru flestir að hittast í fyrsta sinn. Ferðinni var heitið til Brussel á ráðstefnu í tilfetni 10 ára afmælis E-twinning og heitir það „eTwinning 2015 annual conference: focus on active citizenship!“.

Meira en 500 kennarar frá Evrópu hittust á Hotel Crowne Plaza Brussels - Le Palace. Margar málstofur og vinnustofur voru í boði, nýjar og breytilegar leiðir kynntar, ný tengsl mynduðust og gömul kynni endurnýjuðust.

 Viz data

Eftir setningu ráðstefnunnar var farið í ratleik um miðbæ Brussel þar sem ráðstefnugestum var skipt niður handahófskennt. Þetta var skemmtileg leið til þess að hrista saman fólk frá ólíkum löndum og auka tengslanet.

Það voru áhugaverðar vinnu- og málstofur í boði á ráðstefnunni sem við nýttum okkur vel. Skráning á þessar málstofur fóru stundum ofan garðs og neðan, þar sem ekki var hægt að fá sæti og því þurfti að leita annað. Ef eitthvað þá víkkaði þetta sjóndeildarhringinn og farið var út fyrir þægindarammann og á vinnustofu sem hefði ekki verið fyrsta val. Fram fóru frásögur af verkefnum sem hafa verið unnin og leituðu óreyndir kennarar í þær vinnustofur.

Þetta var skemmtileg upplifun, mikil vinna og góð tengslamyndun. Kennarar Evrópu eru með endalausar hugmyndir að verkefnum sem margir eru reiðubúnir að taka þátt í. Fyrir kennara á Íslandi er þetta ómetanlegt því þetta víkkar út sjóndeildarhring nemenda svo um munar. Við höfum ekki jafn góðan aðgang að söfnum og menningarstofnunum hér á landi og víða á meginlandi Evrópu og því er oft um mikla upplifun að ræða í gegnum verkefnin.

Frábær ferð og frábær hópur sem tók þátt - án efa nokkuð sem hægt er að mæla með.


eTwinning kynning á Vestfjörðum

Á haustfundi kennara á Vestfjörðum var Elín Þóra Stefánsdóttir eTwinning fulltrúi með kynningu fyrir 40 kennara.  Kynnt voru eTwinning verkefni sem hún hefur tekið þátt í og farið í gegn um hvernig á að skrá sig inn. Stuðst var við frábæru myndböndin sem eru inni á etwinning.is Vonandi skilar þetta fleirum í okkar hóp. Kveðja að vestan.


Norrænt eTwinning námskeið fyrir leikskólakennara í Tromso Noregi.

Við héldum til Osló og þaðan til Tromso 26 ágúst. Þar gistu við eina nótt og daginn eftir hittust allir sem komir voru á námskeiðið á skrifstofu eTwinning í Tromso.

Þar var létt kynning á því sem framundan var, við unnum nokkur iPad verkefni og allir þátttakendur kynntu sig. 

sommeroy

Seinnipartinn var lagt af stað til Sommaroy þar sem námskeiðið var  haldið föstudag til sunnudags. Þar voru fleiri kynningar á iPad verkefnum, kennarar frá hverju landi kynntu hvað er að gerast ísínum skólum og þátttakendur fengu að kynnast og mynda samstarfsteymi. 

Tveir kennarar frá sitthvoru landinu hófu eTwinning samstarfsverkefni og kynntu það fyrir öðrum þátttakendum. Einnig  fengum við að prófa og sjá ýmis hjálpartæki og öpp í tengslum við  iPad.

  

    

20150828_074633  20150828_081318

Þessi ferð var mjög vel heppnuð, hópurinn einstaklega samrýmdur og allt umhverfi og skipulag til fyrirmyndar.

11949558_10152974309561879_3146580874786102692_n

  Sólveig Þórarinsdóttir

  Sigurbjört Kristjánsdóttir

  Gerður Magnúsdóttir

 


Frá ferð okkar til Hasselt í Belgíu - eTwinning vinnustofa - Talent based learning 5. - 8. júní 2015

 

 

Við komum til Hasselt um kvöldmatarleytið þann 4. júní eftir langt ferðalag frá Íslandi með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hasselt er fögur borg með fallegum húsum og einstaklega vinalegu fólki.

Um hádegi þann 5. júní hófst setning á vinnustofunum. Þar voru skemmtilegir fyrirlestrar um mikilvægi þess að skapa fjölbreytileika í kennsluháttum – passa að láta nemendum ekki leiðast. Fyrsta daginn vorum við látin vinna verkefni sem reyndu öll á samvinnu.  Um kvöldið var okkur skipað til borðs  með fólki frá öðrum löndum. Samvinnuverkefnin og kvöldmaturinn gerðu það að verkum að við vorum flljót að kynnast fólki og mynda góð tengsl.

Skráning

Sjálfar vinnustofurnar hófust á laugardeginum og voru þær allar mjög áhugaverðar. Við völdum okkur mismunandi vinnustofur   en allar vinnustofurnar tengdust fjölbreyttum kennsluaðferðum á einn eða annan hátt. Einnig voru hæfileikar nemenda okkar í brennidepli.

 

 Boðið var upp á skemmtilega göngu um borgina og kvöldið endaði með hátíðarkvöldverði á 18. hæð hótelsins sem allir þátttakendur gistu á. Síðasti dagur ráðstefnunnar var svo á sunnudeginum.

Þess má geta að vinnustofurnar voru haldnar í háskólanum í Hasselt PTO en allir þátttakendur gengu saman þangað frá hótelinu.

Öll umgjörð, utanumhald og skipulag á ráðstefnunni var algjörlega til fyrirmyndar og ber að þakka NSS í Belgíu fyrir góðar stundir. Eftir ferðina komum við heim með betri tölvukunnáttu og höfum fengið tækifæri til að þjálfa okkur í hinum ýmsu stafrænu forritum sem tengjast öll kennslu á einn eða annan hátt.

Duckface

Lego

Lego - city - present time - love story

Fyrirlestur

Meðfylgjandi eru viðtöl við þátttakendur á vinnustofunni þar með talið Hjördísi Ýrr og Úlfhildi 

Hópmyndataka

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

eTwinning ráðstefna í Róm 27.-29. nóvember 2014

image30.jpg

Um ráðstefnuna - Myndbönd

Það voru glaðværir ferðalangar sem hittust á Keflavíkurflugvelli snemma morguns miðvikudagsins 26. nóvember. Þarna voru á ferðinni 7 kennarar og 2 verkefnisstjórar eTwinning á Íslandi og voru flestir að hittast í fyrsta sinn. Ferðinni var heitið til Rómarborgar á árlega ráðstefnu eTwinning sem haldin var í 9. sinn.

img_0144.jpg

Mjög vel var tekið á móti þreyttum ferðalöngum á stórglæsilegu Marriott Park Hotel seint aðfararnótt fimmtudagins 27. nóvember, eftir 22 klukkustunda ferðalag. Hópurinn fékk að upplifa ýmsilegt á þessu langa ferðalagi, m.a. týndur farangur, flug fellt niður og hótel uppbókað.

image34.jpg

Snemma að morgni fimmtudagsins 27. nóvember var förinni heitið í skoðunarferð um miðbæ Rómar. Þar sem áhugi hópsins var mismunandi var ákveðið að skiptast í þrjá smærri hópa. Mikið var um að vera í borginni m.a. voru kennarar að mótmæla og kröfðust hærri launa. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar í bæjarferðinni.

image26.jpg

image25.jpg

image31.jpg

image07.jpg

 

Ráðstefnan var sett kl. 14:00 þann dag. Sjá nánari umfjöllun á ráðstefnuvefnum. Það var menntamálaráðherra Ítalíu, Davide Faraone, sem hélt upphafsræðuna og bauð alla velkomna. Að því loknu fluttu fulltrúar NSS nokkur orð, því næst flutti Antonio Silva Mendes frá framkvæmdastjórn ESB nokkur orð og að lokum Marc Durando frá European Schoolnet. (sjá glærur)

Heildardagskránna er að finna hér:

Að þessu sinni var það Lord David Puttnam sem flutti Keynote ræðuna sem gaf tóninn fyrir ráðstefnuna. Erindi hans sem var mjög áhugavert og áhrifaríkt, kallaðist “We are encountering three “climate changes” at once - digital, ecological and economic. Can our education systems cope with this triple threat?” Hér má sjá umfjöllun um ræðuna hans:


Dagurinn endaði í stórskemmtilegum leik “Game of Romes”. Öllum þátttakendum hafði í upphafi verið skipt í hópa sem áttu að leysa ýmis verkefni í sameiningu. Meðal verkefna var að hanna grímu í anda skylmingaþræla (gladiators), semja sögu saman og tísta henni og semja dans við fyrirfram ákveðið lag. Þessir leikar voru mjög skemmtilegir og hristu mannskapinn vel saman.

image35.jpg

Að kvöldi dags var boðið upp á glæsilegt kvöldverðarhlaðborð á 6. hæð hótelsins, þar sem allir þátttakendur ráðstefnunnar snæddu saman og áttu ánægjulega kvöldstund. Kvöldið endaði á útsýnisferð þar sem litin voru helstu kennileiti borgarinnar.

image27.jpg

Að morgni föstudagsins 28. nóvember voru haldnar mjög fjölbreyttar og áhugaverðar vinnustofur. Sjá yfirlit hér.

 

Við tókum þátt í eftirfarandi vinnustofum:

How to teach coding - Ingrid Maadvere and her pupils (sjá glærur)

Þessi vinnustofa var vel skipulögð og efnið aðgengilegt. Ingrid og tveir nemendur hennar kynntu verkefni þeirra sem unnið var með skóla á Ítalíu. Þau sýndu okkur helstu tól sem þau hafa verið að nota sem má sjá á glærunum hér fyrir ofan. Í lokinn fengu allir að prufa forritið Scrats til mikilar lukku og voru nemendur og kennara úr skólanum tilbúnir að aðstoða.

Hér má sjá hlekk á umfjöllun um vinnustofuna á ráðstefnuvefnum: 

img_0274.jpg


Introducing Coding to your Classroom - Tommaso Dalla Vecchia

Frábær vinnustofa sem var farið í helstu tól sem hægt væri að nota til að kenna forritun og hvað það væri mikilvægt að kennara myndu kynna sér þetta sem fyrst til að geta kennt nemendum sínum. Eftir innlegg frá kennara var hópum skipt í smærri einingar til að ræða hvað þeirra skóli hafi gert. Kelduskóli komst á blaðið og var myndaband sýnt frá skólanum í báðar vinnustofur sem Tommaso var með. Hér má sjá grein og myndband um Code of the Week sem skólinn tók þátt í.

img_0286.jpg

 

Setting online safety standards for schools - Janice Richardson and Stefan Opsomer

Í þessari vinnustofu var farið yfir það hvernig skólar gætu unnið að áætlun fyrir öruggari notkun á internetinu. Hópnum var skipt í smærri einingar sem áttu að vinna áætlun, margar vangaveltur komu fram og vildu sumir hafa allt harðlæst á meðan aðrir vildu hafa allt opið. Einnig var fjallað um að hver skóli ætti að setja reglur um internetið og netnotkun.

How to Flip your Clasroom! - Það var Helen de Lange sem hélt þessa vinnustofu sem var mjög vel skipulögð og efnið mjög aðgengilegt og skýrt (sjá glærur). Fyrirmynd hennar að vendikennslu er Katie Gimbar, sjá Ted-Ed myndskeið: http://ed.ted.com/on/BynFDc4l. Hún benti vefsíðuna og þar er að finna margar hugmyndir. Þau verkfæri sem hún nýtir sér eru: Camtasia, Jing, Screencast-o-matic, Screeenr, TeachingChannel, Edmodo, Khanacademy, Sparkol, TEDEd, Flip de Clip, Educreations, Youtube, Dropbox, Explain everything, Flipped classroom workshop.

Við fengum mikla hvatningu en einnig kviknuðu margar hugmyndir um hvernig við getum nýtt vendikennslu í störfum okkar.
Hér má sjá hlekk á umfjöllun um vinnustofuna á ráðstefnuvefnum:  

Twitter in the class and staffroom - Bart Verswijvel og Arjana Blazic. Frábærir vinnustofustjórar, þau voru mjög hvetjandi og hugmyndarík og fengu þátttakendur til að taka virkan þátt. Arjana var með okkur í beinni útsendindu frá Ameríku. Þarna fengum við margar hugmyndir sem auðvelt er að tileinka sér og nýta þennan frábæra samskiptamiðil í kennslu. Sem dæmi má nefna að nemendur þurfa ekki að vera skráðir notendur til að nýta twitter, mögulegt er að nota hópskráningu; senda QR-kóða; varpa fram spurningum; búa til “fake” notanda t.d. látinn rithöfund; tísta dansandi og margt fleira, sjá nánari útfærslur á eftirfarandi slóð: http://bit.ly/etwiontools. Þrátt fyrir smá hnökra í internettengingunni var þessi vinnustofa alveg ómetanleg.  

image02.jpg

Responsible use of the Internet - Sarah Willoughby. Í þessum vinnubúðum fjallaði Sarah um örugga notkun internetsins, fram fóru heilmiklar umræður og vangaveltur um bestu starfsvenjur í þeim efnum. Hún var með nokkuð af kennsluefni, bæklinga, bækur og dvd diska sem þátttakendur gátu tekið með sér heim. Á heimasíðu Safer Internet Centre í Bretlandi er að finna hagnýtar upplýsingar sem hægt er að nýta í kennslu: http://www.saferinternet.org.uk/. 10. febrúar er Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, það eru SAFT og Samtökin Heimili og skóli sem standa fyrir áhugaverðri dagskrá og hvetjum við alla skóla til að kynna sér og taka þátt (fylgist með auglýsingu á http://www.saft.is). Til gamans má geta að Kelduskóli og Hólabrekkuskóli eru skráð í eTwinning verkefni sem tengist þessum degi. Eftirfarandi eru krækjur í fleiri heimildir: Esafety Label, Insafe, Esafety kit, Digital universe, Being online activity book og Safer Internet Day.

Hér er hægt að sjá glærur úr nokkrum vinnubúðum:

image17.jpg

 

Dagurinn endaði á stórglæsilegum kvöldverði á Palazzo Taverna Via Dei Gabrielli. Húsið sem var byggt á 13. öld var í alla staði mjög aðlaðandi, borð- og húsbúnaður var hinn glæsilegasti. Við fengum skemmtilega borðfélaga frá Lúxemborg, Belgíu og Hollandi og voru umræður mjög fjölbreyttar.

image14.jpg

image24.jpg

image05.jpg

Á laugardagsmorgninum gat hver og einn tekið þátt í einni vinnubúð en það voru 13 í boði. Stórglæsileg lokasamkoman var haldin í stærsta salnum á fyrstu hæð hótelsins, undir yfirskriftinni eTwinning & Competences. Þátttakendur í pallborðsumræðunum voru Brian Holmes, EACEA, Riina Vuorikari, IPTS, Donatella Nucci, Italian NSS og Patrick Griffin, University of Melbourne.

Að lokum voru veitt verðlaun fyrir Game of Romes leikinn. Ein úr okkar hópi fékk bol og heyrnartól í verðlaun fyrir frábæra framistöðu í leiknum. Síðdegis var svo haldið heim á leið og var ferðin nánast áfallalaus.

Ferðin var í alla staði frábær, vel skipulögð og mjög vel heppnuð. Það sem stendur upp úr er fólkið sem við kynntumst, hugmyndirnar sem við fengum til að nýta UT í störfum okkar og allar hugmyndirnar um framtíðar eTwinning-verkefni.

Takk fyrir okkur

eTwinning ferðalangarnir

Bjarndís og Rakel


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband