Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 6. ágúst 2010
Gjöf til kennara í Flataskóla
Fengur þótti að heimsókn Guðmundar Inga í Flataskóla nýlega en hann færði okkur gjafir sem unnið höfðu að verkefninu Schoolovision 2010. En það voru minnislyklar sem koma sér vel við tölvuvinnuna í vetur. En eins og komið hefur fram áður í fréttum og m.a. á vefsíðu skólans vann verkefnið til fyrstu verðlauna í keppninni Schoolovision 2010. Þetta er annað árið í röð sem skólinn tekur þátt í þessu verkefni en á síðasta ári hlaut hann 4. sætið í keppninni. Stjórnandi verkefnisins er Michael Purves frá Skotlandi. Verkefnið hefur gefið okkar hér í Flataskóla ástæðu til að breyta og bæta verkefnavinnu nemenda og hefur m.a. skapast sú hefð undanfarin tvö ár að vera með Flatóvision á miðri vorönn og leyfa nemendum að koma með framlag að eigin vali í sambandi við söng og dans. En Flatóvision er sett upp með samskonar formi og Eurovision. Sigurlagið fer svo í keppnina hjá Scoolovision það árið. Nemendur voru mjög áhugasamir um verkefnið og voru löngu farnir að spyrjast fyrir um þetta áður en við auglýstum eftir framlögum í vor. Ég mæli með því og tel það mjög hvetjandi bæði fyrir nemendur og kennara að taka þátt í svona verkefnum og eiga samskipti við nemendur og starfsfélaga sína erlendis. Það opnar fyrir svo ótal marga skemmtilega möguleika og okkur tekst að nýta tæknina á svo margvíslegan hátt sem kemur stundum mjög á óvart.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 26. maí 2010
Flataskóli sigrar í Schoolovision 2010!
Flataskóli sigraði Schoolovision 2010 - söngvakeppni 34 skóla í Evrópu. Þetta er annað árið sem Flataskóli tekur þátt í þessu skemmtilega eTwinning-verkefni. Átta stelpur úr 5. bekk sigruðu með laginu Dancing Queen sem Abba gerðu frægt um árið.
Keppninni lauk í gærmorgun með atkvæðagreiðslu í beinni útsendingu á netinu - rétt eins og í Evróvision. Verkefnið hefur virkjað allan skólann, en Flataskóli stóð fyrir sinni eigin undankeppni - Flatóvision. Yfirumsjón með verkefninu í Flataskóla hefur Kolbrún Svala Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni.
Schoolovision hlaut einnig Evrópuverðlaun eTwinning á árlegri ráðstefnu eTwinning í Sevilla fyrr á þessu ári. Kolbrún Svala tók á móti verðlaununum ásamt fjölda samstarfskennara úr verkefninu. Flataskóli hlaut einnig verðlaun í landskeppni eTwinning fyrir síðasta skólaár, sem veitt voru af menntamálaráðherra síðasta haust.
Sjá frétt RÚV um sigurinn hér.
Sigurmyndband Flataskóla er hægt að skoða hér.
Meiri upplýsingar um Schoolovision hér.
Landskrifstofan óskar Flataskóla til hamingju með frábæran árangur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 7. maí 2010
eTwinning-vinnustofa í Tomar, Portúgal, 8.-10. Apríl 2010
Við stöllur Ágústa Unnur Gunnarsdóttir kennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir kennari í Háteigsskóla vorum valdar úr hópi umsækjenda um að fara á eTwinning vinnustofu í Tomar í Portúgal. Við höfum báðar umsjón með kennslu erlendra nema í skólum okkar og þar sem þema vinnustofunnar að þessu sinni var : Facing Diversity in the classroom. - Interculturalism, appreciation and inclusion þ.e. Fjölmenning og sú áskorun sem í henni felst fyrir skóla vorum við mjög áhugasamar.
Þemað höfðaði sem sagt sterkt til okkar og sáum við fram á spennandi og lærdómsríka daga í Tomar sem raunin varð. Vinnustofan stóð yfir frá 8.-10.apríl í 25 stiga sól og hita í fallega miðaldarbænum Tomar sem er 130 km. norður af Lissabon. Um 100 þátttakendur voru í vinnustofunum og komu þeir víðsvegar að frá nánast allri Evrópu. Aðstæður í Tomar voru til fyrirmyndar og var vel tekið á móti hópnum. Dagskráin þétt skipuð en þó gáfust tækifæri bæði í matarhléum og á kvöldin að mynda tengsl og huga að hugsanlegum samstarfsverkefnum. Skipulagið allt var gott og umhverfið í Tomar spillti svo sannarlega ekki fyrir.
8. apríl
Eftir að skipuleggjendur höfðu boðið hópinn velkominn og kynnt dagskrána var farið yfir helstu leiðir til samskipta og samstarfs í gegnum eTwinning gáttina. Við fengum kynningu á eTwinning samstarfinu og hvaða möguleika það getur gefið okkur. Það sem er spennandi við eTwinning er að hér eru engar skýrslur sem þarf að fylla út, engar skriflegar umsóknir og engar lokaskýrslur. eTwinning verkefni geta verið mjög mismunandi, stór eða smá, til lengri eða skemmri tíma og allar námsgreinar koma til greina svo og samþætting námsgreina.Tilgangurinn með vinnustofum sem þessum er að efla samskipti milli nemenda í Evrópulöndum og myndi tengsl við aðra kennara og skólastjórnendur sem geta leitt af sér samvinnuverkefni í gegnum eTwinning. Eftir kynningu á möguleikum eTwinning fengum við nasasjón af því sem koma skyldi, en tveir af aðalfyrirlesurum og leiðbeinendum vinnustofanna kynntu vinnustofur sínar. Eftir fyrirlestrana var haldinn sameiginlegur kvöldverður þar sem okkur gafst tækifæri á að kynnast þátttakendum betur.
9.apríl
Fyrir hádegi hlýddum við á fyrirlestur sem heitir Intercultural Dialogue; an introduction það var Joana Salgueiro frá Portúgal sem hélt fyrirlesturinn. Hún lagði aðaláherslu á að ræða hugtökin identity, culture, participatinon. Hún fjallaði um mikilvægi þess að við hættum að hugsa fólk í afmörkuðum hópum og byrjuðum að hugsa um okkur öll, um heildina. Eftir hádegi voru 4 vinnuhópar að störfum, við völdum okkur hópinn Facing diversity in the classroom: students as partners". Það var Isabela Paes frá Portúgal sem stjórnandi þessari vinnustofu. Hún lagði áherslu á fjölbreytta kennsluhætti og hvernig við getum unnið með fjölbreytileikann. We need to keep all students occupied all the time Hún lagði áherslu á að nám og kennsla er ferli sem aldrei lýkur, allir hafa eitthvað mikilvægt til málanna að leggja og við erum aldrei búin að læra. Leggið alltaf áherslu á að allir skipti máli, og að nemendurnir eru langmikilvægasta auðlindin í skólanum. Að loknum strembnum vinnudegi þar sem við unnum í hópum til kl. 18.00 voru við öll boðin í miðaldarkvöldverð í kastalanum í Tomer Knights templar Castle . Þar voru leikarar og söngvarar sem sungu og dönsuðu fyrir þátttakendur og borinn fram portúgalskur matur.
10.apríl
Á þessum lokadegi vinnustofunnar unnum við í hópum þar sem við settum upp hugsanleg tengslaverkefni.Við áttum að:
- Finna samstarfsaðila
- Finna viðfangsefni
- Ákveða markmiðin
- Ákveða á hverju við ætlum að byrja
- Gera grein fyrir væntanlegum niðurstöðum
Flestir fóru á flug og byggðu grunn að fjölbreyttum verkefnum. Sem dæmi um hugmyndir af verkefnum má nefna: leikhús án orða, heimildamyndir, söguhring og vinna með Google map.
Við þökkum fyrir ánægjulega og lærdómsríka daga í Tomar,
Ágústa Unnur Gunnarsdóttir og Rangheiður Valgerður Sigtryggsdóttir
Bloggar | Breytt 8.5.2010 kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
eTwinning 5 ára
eTwinning vinnustofa í Furugrund
Í tilefni af 5 ára afmæli eTwinning þá höfðum við vinnustofu í leikskólanum Furugrund í dag. Börnin hengdu upp veggspjöld sem þau höfðu tekið þátt í að útbúa. Á veggspjöldunum eru upplýsingar um þau eTwinning verkefni sem við höfum tekið þátt í í vetur, Space, Braintrainers og Taste of my life.
Börnin teiknuðu einnig afmæliskökur og fleira. Þau sýndu með aðstoð tölvu ýmis viðfangsefni sem þau höfðu sett inn á heimasíður verkefnanna og einnig skemmtilegt afmælismyndband frá Tyrklandi.
Allir fullorðnir sem höfðu áhuga á verkefninu og stoppuðu við og hlustuðu á börnin fengu að launum minnislykil sem við fengum gefins hjá Guðmundi á skrifstofunni.
Sjón er sögu ríkari svo njótið þess að horfa á myndbandið hér fyrir neðan.
Með afmæliskveðju frá okkur öllum í leikskólanum Furugrund.
http://furugrund.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Bókin um eTwinning 2010 – auglýst eftir áhugasömum þátttakendum
Miðstöð eTwinning í Evrópu undirbýr bókina um eTwinning 2010 and þarfnast aðstoðar ykkar! Í ár mun bókin snúast um það sem ÞIÐ hafið að segja um eTwinning: ykkar upplifun og reynsla, það sem hefur hindrað ykkur, og það sem þið hafið fengið með þátttökunni. Þar sem eTwinning er samfélag skóla í Evrópu, er mikilvægast að hlusta á það sem kemur frá samfélaginu sjálfu.
Af þessum sökum, er kennurum skráðum í eTwinning boðið að gefa til kynna hvort þeir hafi áhuga á að leggja eitthvað til kafla bókarinnar.
Verið er að leita að efni þar sem komið er inn á eftirfarandi:
Að byrja í eTwinning
Að hagnýta eTwinning
Reynsla og upplifun í eTwinning-samfélaginu
Samstarfsverkefni mín í eTwinning
eTwinning og endurmenntun
eTwinning persónuleg reynsla
Hvernig á að svara þessu kalli?
Skráðu þig inn á þitt eigið eTwinning svæði (eTwinning Desktop). Þar er að finna auglýsingu með tengli inn á form sem fylla á út.
Ykkur stendur til boða að lýsa áhuga ykkar til 15. Maí 2010. Miðstöð eTwinning í Evrópu mun síðan velja úr kennara sem síðan skila inn sínu framlagi til bókarinnar. Fyrirfram þakkir fyrir stuðninginn við hlökkum til að heyra í ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. apríl 2010
Norræn eTwinning-vinnustofa á Svalbarða 28.-30. ágúst 2010
Þema: Loftlagsbreytingar og norðurheimskautið
Ætlað kennurum í samfélgasfræði og náttúrufræði (eðlisfræði, efnafræði, líffræði, samfélagsfræði, saga eða landafræði).
Skólastig: Unglingastigi (8. til 10. bekkur), og framhaldsskólastig.
Ferðastyrkur í boði fyrir 2 til 3 kennara
Vinnustofan fer fram á skandinavísku (dönsku, norsku og sænsku), og því gerð krafa um færni í einhverju þessara mála.
SKRÁNINGARFRESTUR til og með 12. maí nk.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna og skráningu:
Invitasjon til arbeidsseminar for lærere på Svalbard 28. 30.august 2010:
I regi av eTwinning gjennomføres det hvert år en rekke arbeidsseminar rundt om i Europa. De nordiske landene har årlig et eget arbeidsseminar som skal fremme nordisk kultur- og språkforståelse i arbeidet med et gitt tema.
Tema:
- Tema for årets samling er klimautfordringene, spesielt knyttet til arktiske strøk.
Forutsetninger for å kunne søke om å få delta:
- Du må være lærer på ungdomsskolen eller i videregående opplæring dvs. grundskolen 8.-10. klasse eller ungdomsuddannelserne (framhaldsskólastig).
- Du må undervise i naturfag eller i samfunnsfag (fysik, kemi, biologi, samfundsfag, historie eller geografi) og ha tema klima på arbeidsplanen for skoleåret 2010/ 2011.
- Du må være registrert eTwinninglærer (registration på denne side: www.etwinning.net).
Søknaden skal inneholde:
- Navn, adresse og skole
- Kort beskrivelse av faglig bakgrunn og fag- og trinntilknytning på arbeidsplass
- Kort ideskisse til et gjennomførbart nordisk prosjekt om klimautfordringene
Krav til deltaker:
- Før arbeidsseminaret i august skal deltakerne introdusere seg og samhandle på eTwinningportalen.
- Under arbeidsseminaret skal det etableres prosjektgrupper med 2-4 medlemmer fra de nordiske landene.
- Prosjektgruppene skal lage en prosjektplan med foreløpig framdriftsplan.
- Etter arbeidsseminaret skal avtalt prosjektplan gjennomføres med egne elever i løpet av det neste skoleåret.
Praktiske opplysninger om arbeidsseminaret:
- Seminaret er gratis. Flyreise og opphold dekkes av arrangør.
- Avreise lørdag 27.8.2010 og retur tirsdag 30.8.2010
- Programmet starter kl. 9.00 den 28.8 og avsluttes kl. 13.00 den 30.8.
Programmet vil ta opp:
- Prosjektarbeid med internasjonale partnere
- Bruk av eTwinningportalen i en pedagogisk setting
- Videoproduksjon som pedagogisk virkemiddel
- Svalbard som utsatt område i klimadebatten
- Arbejdssproget vil være skandinavisk.
Ansøg om deltagelse på denne side:
www.korturl.dk/9b7
Ansøgningsfrist er 12. maj 2010.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. apríl 2010
5 ára afmæli eTwinning 5.5.
www.etwinning.net/en/pub/anniversary/index.htm
Það er öllum frjálst að taka þátt sem vilja og hafa tíma -- væri virkilega gaman ef einhver þeirra sem hafa tekið þátt í eTwinning-verkefnum gerðu eitthvað í tilefni dagsins!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. febrúar 2010
Flataskóli verðlaunaður á eTwinning-hátíð í Sevilla
Um helgina fór fram hin árlega ráðstefna eTwinning sem að þessu sinni var haldin í Sevilla á Spáni. Þema ráðstefnunnar var 5 ára afmæli eTwinning. Hátt í 500 manns -- kennarar, fulltrúar landskrifstofa, ESB, ofl. -- sóttu ráðstefnuna sem samanstóð af fyrirlestrum, vinnustofum og sýningarbásum. Aðalfyrirlesari var hinn þekki menntafrömuður Stephen Heppell sem blés gestum í brjóst um skóla 21. aldarinnar.
Íslenska sendinefndin samanstóð af tveimur frá landskrifstofunni og kennurum frá fimm skólum: Sif Bjarnadóttir, MH, Hjördís Skírnisdóttir, Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu, Kolbrún Svala Hjaltadóttir, Flataskóla, Gry Ek, Laugalækjarskóla, og Rakel Magnúsdóttir, Leikskólanum Bakka.
Á föstudaginn bar hæst til tíðinda veitin Evrópuverðlauna eTwinning í nokkrum flokkum. Í flokki skapandi verkefna vann verkefnið Schoolovision! til verðlauna, en þar tóku þátt tugir landa í einskonar Evróvisjón þar sem nemendur hvers skóla senda inn myndbönd. Í lokin var haldinn video-fundur í rauntíma þar sem þátttökulöndin kusu um sigurvegara, eins og gert er í söngvakeppninni.
Fulltrúi Íslands í Schoolovision er Flataskóli og hefur Kolbrún Svala Hjaltadóttir borið hitann og þungann af starfinu. Kolbrún var á staðnum ásamt um 15 samstarfsaðilum sínum og veittu þau verðlaununum viðtöku. Á myndinni má sjá Kolbrúnu fyrir miðju með stafinn "o" í fanginu.
Við erum vitanlega að rifna úr stolti!
Guðmundur - Landskrifstofu eTwinning
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. febrúar 2010
Hallormsstaðaskóli og Etwinning
Á síðasta hausti var ég svo heppin að vera valin úr hópi margra umsækjenda um að fá að fara til Bonn á tveggja daga Etwinning workshop eða vinnustofu. Ég undirrituð og Dögg Lára Sigurgeirsdóttir kennari í Langholtsskóla fórum þangað saman ásamt Guðmundi Inga Markússyni ,,Etwinning -stjóra Íslands. Ekki ætla ég hér að fjölyrða um annars gott ferðalag í afbragðsgóðum félagsskap þeirra en er komið var á áfangastað var ljóst að ekki var í kot vísað því aðbúnaður allur, undirbúningur og síðar framkvæmd var afar góður. Þar voru svo samankomnir um 250 kátir og hressir kennarar víðsvegar að úr Evrópu sem gaman var að hitta.
Yfirskrift vinnustofunnar fól í sér að kynna okkur helstu markmið með Etwinning og kenna leiðir sem fara mætti á til að ná þeim. Markmið þessi fela í sér að efla samskipti milli nemenda í Evrópulöndum, í leik og starfi, í námi og tómstundum. Annað er að kennarar stofni til Etwinning verkefna sem auðvelt er að gera og ekki sakar að það er ókeypis og þægilegt. Þriðja að kennarar og nemendur geti nýtt sér algenga og aðgengilega tækni nútímans til samskipta. Undirtónn alls þessa er svo óskráð auðvitað göfugt yfirmarkmið sem er að vera ein þeirra leiða sem fara má til þess að stuðla að vináttu, samvinnu og friði milli einstaklinga og þjóða í Evrópu.
Okkur var fyrst og fremst kennt á Etwinning gáttina sem er lokuð öðrum en innskráðum þátttakendum, kennarar skrá sig sjálfir og sjá síðan um að veita nemendum sínum aðgang. Fyrirlestrar voru haldnir um menningarlegan mun þjóða á milli, svosem að það sem þykir kurteisi á einum stað getur verið argasti dónaskapur á öðrum. Við fengum kynningu á gerð og upphleðslu hljóðskráa, kvikmyndaskráa og hvernig þeim má koma á netið, leiðir til samskipta í gegnum e-mail, hið góðkunna samskiptaforrit Skype , hið minna þekkta DimDim, ofl.
Á einum fyrirlestrinum kynntist ég henni Virgíniu, kennara frá Portúgal sem er kunnug bæði Etwinning- og Comeníusarverkefnum. Hún bauð mér að taka þátt í litlu Etwinning verkefni sem hún kallaði Christmas is coming og þáði ég það. Til stóð að um 13 skólar um alla Evrópu tækju þátt en raunin varð nú upp og ofan. Fimm til sex skólar unnu að verkefninu og var Hallormsstaðaskóli, þó ég segi sjálf frá - merkilegt nokk einna mikilvirkastur. Nemendur mínir voru enda mjög stoltir þegar skrifstofa Etwinning sendi skólanum okkar vefmyndavél sem viðurkenningu fyrir þátttöku í Etwinning verkefninu.
Það gengur á ýmsu fyrir jólin - víðar en á Íslandi! Hér í Hallormsstaðaskóla unnu nemendur mínir í 6. og 7.bekk af miklum áhuga. Þau kynntu sjálf sig, land og þjóð, sögðu frá jólasiðum, jólasveinunum og Grýlu, mat, drykk, sömdu sögur og sendu jólakort. Ávinningurinn var heilmikill fyrir okkur öll. Jólaþema hópsins var þannig unnið með öðrum hætti en áður, alveg nýtt sjónarhorn fundið því nú skyldi öðrum þjóðum kennt um Ísland. Desember var því algerlega undirlagður af skemmtilegum verkefnum. Nemendur mínir voru mjög áhugasamir og alvörugefnir um allt það sem barst frá hinum þátttöku þjóðunum. Undarlegast fannst þeim að fólk um alla Evrópu væri að borða fisk í jólamatinn! Þá væri nú eitthvað annað hér- ilmandi hangikjet í öllum húsum.
Þau gerðu einlægar tilraunir til að semja texta á ensku því loksins var einhver útlendingur að lesa það sem þau skrifuðu! Vissulega fengu þau hjálp frá mér og kannski heldur mikla, en auðvitað var þetta um leið fyrsta verkefni mitt af þessum toga. Krakkarnir lærðu að leita á vefnum, sækja skrár og vista, fella saman skrár, lærðu að sumt er háð höfundarrétti, lærðu mjög vel á PP forritið og Word, dýpkuðu tækniþekkingu sína, fundu lausnir við að tengja tól og tæki innanhúss, kynntust Skype, lásu sig til um jólasiði og jólafjölskylduna okkar góðu ásamt andstyggðar húsdýrinu þeirra jólakettinum, og komu á framfæri með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti svo endalaust mætti telja. Okkur vantaði helst stuðning við kvikmynda og hljóðskrárgerð en ætlum að finna leiðir til þess á næstunni og beita þeim í næsta verkefni.
Að fenginni reynslu finnst mér sjálfsagt að hvetja kennara til þess að prófa að vinna svona millilanda verkefni. Það er auðvelt og ódýrt engin skriffinska og vesen. Það er allt í senn gefandi og krefjandi, forvitnilegt og fróðlegt, og ekki síst bráðskemmtileg viðbót í kennsluaðferðaflóruna. Etwinning er leið til að kynnast nýju fólki sem taka má saman höndum við, fólki með góðar og frjóar hugmyndir. Etwinning er ætlað að vera bara skemmtileg eins og sagt er.
Það sem mestu máli skiptir eru svo auðvitað nemendur. Þarna geta þau eignast kunningja og jafnvel vini, skipst á skoðunum og upplýsingum. Ekki skyldi svo gleyma því að börn nútímans hafa mikinn áhuga fyrir tækjum og tólum og Etwinning verkefni eru upplögð til þess að beina þeim áhuga í verðugan og skapandi farveg.
Íris Randversdóttir kennari á Hallormsstað
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 8. janúar 2010
Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010
Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Evropusamvinnu.is er ætlað að vera fyrsta stopp fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja.
Íslendingar hafa aðgang að fjölda Evrópuáætlanna í gegnum EES samninginn og hafa verið virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Í gegnum samstarfsáætlanir Evrópusambandsins er hægt að sækja styrki og stuðning innan flestra sviða menntunar og atvinnulífs og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar, rannsókna og vísinda, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs. Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.
Eftirfarandi áætlanir og þjónustuveitur verða kynntar á Háskólatorgi:
7. rannsóknaáætlun ESB | RANNÍS |
Menntaáætlun ESB | Landsskrifstofa Menntaáætlunarinnar |
Evrópa unga fólksins | Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins / UMFÍ |
Evróvísir tækifæri fyrir ungt fólk | Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins / UMFÍ |
EURES-evrópsk vinnumiðlun | Vinnumálastofnun |
Menningaráætlunin | Upplýsingaþjónusta menningaráætlunarinnar á Íslandi |
MEDIA kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun ESB | MEDIA upplýsingaþjónustan |
Enterprise Europe Network CIP | Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Útflutningsráð Íslands og RANNÍS |
Norðurslóðaáætlunin | Byggðastofnun |
eTwinning | Landsskrifstofa Menntaáætlunarinnar |
PROGRESS jafnréttis og vinnumál | Félags- og tryggingamálaráðuneyti |
Daphne III gegn ofbeldi á konum og börnum | Jafnréttisstofa |
Almannavarnaáætlunin | Ríkislögreglustjóri |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)