Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 26. júní 2009
Góð þátttaka á eTwinning-námskeiði
Fyrir skemmstu stóð landskrifstofan fyrir byrjendanámskeiði í eTwinning fyrir leikskólakennara þar sem farið var í grundvallaratriði varðandi leit að samstarfsaðila, stofnun verkefna og notkun rafrænu kennslustofunnar "TwinSpace".
Námskeiðið fór fram í nýju tölvuveri á Háskólatorgi og tókst vel. Þátttaka var einnig góð, en 30 leikskólakennarar mættu.
Landskrifstofan fer nú yfir reynsluna af námskeiðinu og hyggur á fleiri slíka seinna á þessu ári eða á því næsta.
Kv. Guðmundur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 27. maí 2009
eTwinning-byrjendanámskeið fyrir leikskólakennara
Ekkert þátttökugjald
Námskeiðið hefst stundvíslega kl 8:30 og stendur til 12:00
Efni:
- Kynning á eTwinning-áætlun ESB og verkefnavinnu
- Kynning á eTwinning-verkefnum við íslenska leikskóla
- Kennsla í grundvallaratriðum eTwinning, s.s. Leit að samstarfsaðila, stofnun verkefnis, notkun rafrænu kennslustofunnar TwinSpace
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur I. Markússon: gim@hi.is / 525 5854
Bloggar | Breytt 28.5.2009 kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 24. maí 2009
Loftslagsbreytingar og eTwinning - Málstofa í Hróarskeldu 26 - 28 mars sl.
Fyrir tæpum tveim mánuðum tók undirritaður þátt í málstofu um loftslagsbreytingar, kenslu og tölvuleiki í Hróarskeldu í Danmörku (Ensk samantekt). Af ýmsum ástæðum hefur það dregist úr hófi fram að segja frá málstofunni og því sem þar fór fram, en betra seint en alldrei. Hugsanlega geta einhverjar af þeim hugmyndum sem þarna komu fram nýttst kenurum næsta vetur.
Sjá má ummfjöllun um málstofuna á neðangreindum tenglum:
http://weblog.emu.dk/roller/internationalt/date/20090326
Opnun málstofunnar ofl.
http://weblog.emu.dk/roller/internationalt/date/20090327
Ýmislegt um málstofuna og áhugaverð verkefni. Mæli sérstaklega með verkefni um matvöru (Flakkebjerg Efterskole) og hitaútstreymi úr húsum. Hvorutveggja góðar hugmyndir að verkefnum hér heima í tngslum við kennslu.
http://weblog.emu.dk/roller/internationalt/date/20090328
http://weblog.emu.dk/roller/internationalt/date/20090329
Það má segja að þessi málstofa hafi verið fjórþætt. Samkoman leið aðeins fyrir það þar sem þáttakendur höfðu mismunandi markmið með þáttökunni.
1. Breytingar á loftslagi jarðar. Nokkuð af umfjölluninni tengdist þessu með beinum hætti. Lýst var skólaverkefnum sem tendust loftslagsbreytingum beint s.s. orkunotkun, mengun, breytingum á vistkerfi og breytingum á lífsstíl.
2. Notkun tölvuleikja við kennslu. Lýst var, m.a. með sýnikennslu, hvernig nota mætti tölvuleiki til að virkja nemendur og láta þá beita kunnáttu og þekkingu við lausn mála í leik. Nokkrir mjög áhugaverðir leikir sýndir m.a. SPORE ( www.eagames.co.uk ) sem tekur fyrir þróun lífsins frá einni frumu til stórra dýra. Einnig má benda á vefninn http://www.co2nnect.org/ en þar kennir ýmissa grasa um efni tengt loftslagsbreytingum, losun gróðurhúsalofttegunda og hátterni einstaklingsins í því sambandi. Hér eru svo nokkrir tenglar á tölvuleiki sem tengjast loftslagsbreytingum:
3. Pörun/hópamyndun. Nokkrum tíma var varið í myndun tengsla og tengslanets. Undirritaður er enn að vinna úr mögulegum tengingum og væntanlega blogga eithvað um það síðar í sumar eðaí haust þegarnær dregur nýju skólaári. Eitt áhugavert verkefni tengist fiskirækt og því að bæta hrygningarskilyrði laxfiska í grunnum ám. Frumkvöðullinn er Franskur skóli (16 - 18 ára nemendur).
4. Vinnustofa um tölvuleik um áhrif loftslagsbreytinga, The Climate Mystery. Leikurinn er í vinnslu og á að verða tilbúinn til notkunar í kennslu í haust í tengslum við loftslagsráðstefnu SÞ í Kaupmannahöfn í desember 2009.Vinnustofan fólst í að ræða hugmyndir sem framleiðendur hafa um þróun leiksins og hvernig einstakir þættir hans gætu nýst í kennslu. Engar sérstakar niðurstöður er enn að hafa varðandi þennan leik en efni hans er áhugavert.
FSu á vordögum 2009
Úlfur Björnsson
Kennari í Landafræði, Jarðfræði og Umhverfisfræðum.
Bloggar | Breytt 25.5.2009 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. maí 2009
eTWINNING-VINNUSTOFA Í REYKJAVÍK 26.-28. ÁGÚST
UMSÓKNARFRESTUR og SVÖR:
Til og með 31. maí næstkomandi. Umsóknir verða metnar í byrjun júní og svör sendar út fyrir miðjan júní.
Fyrir hverja er vinnustofan?
- EKKI er krafist reynslu af eTwinning til þess að taka þátt.
- Aldur nemenda: Kennarar í efstu efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla - þ.e. nemenda á aldrinum u.þ.b. 13-19 ára.
- Kennslufög: Fyrir samfélagsfræðikennara OG kennara í dönsku EÐA öðrum norðurlandamálum.
- Þátttakendur koma frá öllum Norðurlöndunum.
- Fjöldi íslenskra kennarar: Pláss fyrir a.m.k. 10 íslenska kennara.
Tungumálakunnátta þátttakenda:
Vinnustofan fer fram á dönsku, norsku og sænsku. ALLIR þátttakendur verða því að tala a.m.k. eitt þessara mála og hafa þokkalegan skilning á hinum.
Ráðstefnugjald og hótel -- greitt af landskrifstofu:
Ráðstefnugjald sem inniheldur uppihald verður greitt af landskrifstofu. Hótel fyrir þá sem vilja verður einnig greitt af landskrifstofu.
Þema:
Notkun kvikmynda í kennslu samfélagsfræði og norðurlandamála í samhengi eTwinning.
Nánari upplýsingar um innihald vinnustofunnar:
- Dagskráin mun samanstanda af bæði fyrirlestrum og hagnýtum vinnustofum.
- Ætlunin er að kynna notkun norræns kennsluefnis sem gefið hefur verið út undir heitinu Norden i Bio af Norrænu félögunum.
- Einnig verður kynnt hvernig kennarar og nemendur geta sjálfir gert einfaldar stuttmyndir eða örmyndir (tekið upp, klippt og sett út á vefinn).
- Allt verður þetta gert í samhengi eTwinning og hvernig nota megi efnið í eTwinning-verkefnum.
- Einnig verður farið í grundvallaratriði eTwinning.
- Dagskrá er í vinnslu og verður auglýst síðar.
UMSÓKNIR eru sendar inn á þessari slóð:
http://spreadsheets.google.com/viewform?formkey=cmJhdml6NlpTY2hDX1Zvdk9UbW9hN1E6MA
UMSÓKNARFRESTUR og SVÖR:
Til og með 31. maí næstkomandi. Umsóknir verða metnar í byrjun júní og svör sendar út fyrir miðjan júní.
Almennt um eTwinning:
eTwinning er áætlun ESB um rafrænt skólasamstarf (þar sem kennarar og nemendur vinna einföld verkefni með samstarfsskólum í Evrópu yfir Internetið).
www.etwinning.is
www.etwinning.net
Um Norden i Bio:
www.nordenibio.org/?bits=D198&lang=is&menu=2008
Guðmundur Ingi Markússon
Landskrifstofu eTwinning á Íslandi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. apríl 2009
eTwinning-málstofa (Professional Development Workshop) í Varsjá, 15.-17. maí 2009 (föstudagur til sunnudags)
Nánari upplýsingar og dagskrá er að finna á þessari slóð.
Á eTwinning-málstofur kemur fjöldi kennara víðsvegar að úr Evrópu.
Landskrifstofan getur sent 2 kennara frá Íslandi, og greiðir ráðstefnugjald, flugfargjald, gistingu og grunndagpeninga á ferðadögum.
Umsækjendur þurfa ekki að vera skráðir þátttakendur í eTwinning.
Skráningarfrestur er til og með 15. apríl.
RAFRÆNT SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. mars 2009
Íslenskur skóli í 2. Sæti Evrópuverðlauna eTwinning
Verkefni sem Fjóla Þorvaldsdóttir, Leikskólanum Furugrund hreppti 2. sætið í flokki stærðfræði- og vísindaverkefna.
Árleg ráðstefna eTwinning var haldin í Prag, 13. til 15. febrúar síðastliðinn og var sett af Ján Figel, yfirmanni menntamála hjá framkvæmdastjórn ESB, og menntamálaráðherra Tékklands, Ondřej Lika. Yfir fjögur hundruð kennarar og fulltrúar eTwinning allsstaðar að úr Evrópu sóttu ráðstefnuna, þar á meðal sjö manns frá Íslandi. Dagskráin var glæsileg og af ræðumönnum má m.a. nefna hinn þekkta fræðimann Edward De Bono.
Verkefni sem Fjóla Þorvaldsdóttir, Leikskólanum Furugrund, tekur þátt í ásamt ellefu skólum frá níu Evrópulöndum hreppti 2. sætið í flokki stærðfræði- og vísindaverkefna í samkeppni um Evrópuverðlaun eTwinning. Tvö önnur verkefni, sem Leikskólinn Bakki og Öskjuhlíðarskóli eru þátttakendur í, komust í undanúrslitahóp 22 verkefna. Það verður að teljast frábær árangur að þrjú verkefni með íslenskri þátttöku hafi náð í undanúrslitahóp 22 verkefna í keppni sem spannar allt evrópska Efnahagssvæðið.
Verkefni Furugrundar nefnist 1, 2, Buckle my shoe og taka elstu leikskólabörnin þátt. Í verkefninu er unnið með ákveðið þema í hverjum mánuði, t.d. talnaskilning, rými, o.s.frv. Afrakstur þessa glæsilega verkefnis má skoða á heimasíðu þess:
http://twinmath.wikispaces.com
Á myndinni eru fulltrúar verkefnisins í Prag. Fjóla er lengst til vinstri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18. febrúar 2009
eTwinningráðstefna í Prag 13. - 15. febrúar 2009
Helgi Hólm skrifar
Margir ágætir fyrirlestrar voru fluttir og fjölluðu nokkrir þeirra um sjálft eTwinningstarfið. Aðalfyrirlesari ráðstefnunar var Edward De Bono (http://www.edwdebono.com/) og fjallaði hann um hugsun manna og þörfina á því að kenna fólki að hugsa. Er óhætt að segja að hann hafi átt athygli ráðstefnugesta óskipta meðan á fyrirlestri hans stóð. Í vinnustofunum var fjallað um margvísleg efni svo sem hvernig hægt væri að nota eTwinning verkfæri í uppeldislegu tilliti, eTwinning og öryggi á netinu og samskipti milli skóla svo eitthvað sé nefnt.
Á ráðstefnusvæðinu voru settir upp 30 - 40 básar þar sem hver þátttökuþjóð setti upp kynningu á viðkomandi landi og þeim verkefnum sem verið var að vinna með. Einnig voru básar þar sem fór fram sameiginleg kynning á verkefnum sem unnin voru af mörgum löndum en eTwinning verkefni geta verið bæði unnin af tveimur skólum eða þá allt upp í 100 skólum í mörgum löndum. Það verkefni sem undirritaður er með í nefnist A Living Map of Europe og eru einir 80 skólar með í því verkefni. Það gafst ágætur tími til að fara um sýningarsvæðið og ræða við þá fjölmörgu sem þar voru að kynna sig. Er ekki vafi á að þessi þáttur ráðstefnunnar er mjög mikilvægur og stuðlar efalaust til kynna sem aftur leiða til samstarfs í framtíðinni.
Það er ekki hægt að ljúka við þessi skrif án þess að minnast á Prag. Íslenski hópurinn var mættur nægilega snemma á staðinn til að geta skoðað borgina og að loknum nær þriggja tíma göngutúrs um kastalasvæðið, Karlsbrúna og gamla bæinn þá sitja eftir skemmtilegar minningar um fallega og skemmtilega borg. Og skemmtiatriðin á lokakvöldinu munu seint renna úr minni. Mjög góðum ferðafélögum er þökkuð samfylgdin og ánægjuleg samvera.
Bloggar | Breytt 21.2.2009 kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. febrúar 2009
eTwinning-málstofa (Professional Development Workshop) í Hróarskeldu 26.-28. mars 2009
Málstofan er helguð loftslagsmálum og tengist þingi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem haldið verður í Danmörku á hausti komandi.
Markhópurinn miðast við kennara í unglingadeild grunnskóla og framhaldsskóla, þ.e. þeir sem kenna nemendum á aldrinum13 ára og upp úr.
Nánari upplýsingar um málstofuna á þessari slóð.
Landskrifstofan getur sent 1 kennara frá Íslandi, og greiðir ráðstefnugjald, flugfargjald, gistingu og grunndagpeninga á ferðadögum.
Umsækjendur þurfa ekki að vera skráðir þátttakendur í eTwinning.
Skráningarfrestur er til og með 17. febrúar.
SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. janúar 2009
Verkefni íslenskra skóla í úrslitum og undanúrslitum Evrópuverðlauna!
Leikskólinn Furugrund með verkefnið 1, 2 Buckle my Shoe komst í sjálf úrslitin í flokki vísinda- og stærðfræðikennslu. Leikskólinn Bakki með verkefnið The Four Elements og Öskjuhlíðarskóli með verkefnið I'm great the way I learn.
Úrslit
Aðeins tvö verkefni komust í úrslit í hverjum flokki. Verkefni Leikskólans Furugrundar er í flokki vísinda- og stærðfræðikennslu.
Flokkur 4-11 ára
A traveling raindrop
Skólar frá Kýpur og Grikklandi.
Make film and share IT with friends 2.0!
Skólar frá Svíþjóð og Írlandi.
FLokkur 12-15 ára
MIND THE GAP
Skólar frá Spáni og Póllandi.
No frontiers!
Skólar frá Spáni og Frakklandi.
Flokkur 16-19 ára
Between the lines
Skólar frá Grikklandi og Rúmeníu.
The Pizza Business Across Europe
Skólar frá sjö Evrópulöndum.
Flokkur vísinda- og stærðfræðikennslu
1, 2 Buckle my Shoe
Fjóla Þorvaldsdóttir ofl. hjá Leikskólanum Furugrund ásamt skólum frá sjö Evrópulöndum.
"Vesmír v kole, kola vo vesmíre"
Skólar frá Slóvakíu og Tékklandi.
Flokkur frönskukennslu
Je joue, tu joues, nous jouons
Skólar frá fjórum Evrópulöndum.
Mythes, légendes et contes de fées moyens denrichir le langage des jeunes et la connaissance de lautre
Skólar frá þremur Evrópulöndum.
Undanúrslit
Úrslitaverkefnin voru valin úr þessum hópi. Að komast í undanúrslitaflokkinn er mjög glæsilegur árangur og þar eru verkefni með tveimur íslenskum skólum, Leikskólanum Bakka og Öskjuhlíðarskóla.
The four elements
Rakel Magnúsdóttir hjá Leikskólanum Bakka ásamt skóla í Portúgal.
I'm great the way I learn
Ragnheiður Ólafsdóttir hjá Öskjuhlíðarskóla ásamt sjö Evrópulöndum.
ALL UNDER THE SAME EUROPEAN SKY
Skólar frá tíu Evrópulöndum.
Je blogue, tu blogues, let's blog
Skólar frá Bretlandi og Frakklandi
Science in our schools
Skólar frá þremur Evrópulöndum.
Let´s etwin across the sea
Skólar frá Írlandi og Tékklandi.
One family:three generations/Viena eima :trys kartos
Skólar frá Litháen og Spáni
Musik in der Klasse
Skólar frá þremur Evrópulöndum.
ESTRUCTURA Y CARACTERÍSTICAS DE NUESTRO CENTRO EDUCATIVO
Skólar frá Írlandi og Spáni
Science in our schools
Skólar frá þremur Evrópulöndum.
The world of geometry
Skólar frá Grikklandi og Póllandi.
Reporters d'infos positives
Skólar frá þremur Evrópulöndum.
Sjá einnig frétt á aðalsíðu eTwinning í Evrópu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. desember 2008
Námskeið á Möltu um upplýsingatækni, verkefnasamvinnu og kennslu!
Hægt að sækja um styrk til fararinnar gegnum Comenius og Grundtvig. Sjá meðfylgjandi auglýsingu.
ATH. frestur fyrir íslenskar umsóknir er 15. janúar 2009.
Sótt er um í gegnum heimasíðu Comenius á Íslandi:
Nánari upplýsingar um sjálft námskeiðið er að finna í auglýsingu á etwinning.is.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)