Fimmtudagur, 5. janúar 2012
KISS - Keep it Small and Simple!
Heil og sæl eTwinnarar,
eTwinning verkefni þarf ekki að vera umfangsmikið né flókið til þess að vera gagnlegt og skemmtilegt. Ég var að ljúka pennavinaverkefni með Póllandi og Frakklandi þar sem nemendur áttu í margskonar tjáskiptum á þýsku. Verkefnið spannaði aðeins sjö vikur - sem er ein spönn í nýju kerfi hjá okkur við Menntaskólann á Egilsstöðum. Krakkarnir byrjuðu á því að kynna sig í "Profile" á TwinSpace. Þau sögðu frá sér, fjölskyldu sinni, áhugamálum og slíku - auðvitað allt á þýsku. Síðan völdu þau sér "pennavin". Krakkarnir notuðu bæði vegginn í "Profile", bloggið og póstforritið á TwinSpace til samskipta. Síðan tjáðu þau sig um viss efni í Forum. Þar hljómuðu verkefnin til dæmis: "Hvað óttastu mest?", "Hefurðu áhuga á stjórnmálum? Rökstyddu svarið", "Hefurðu gaman af tölvuleikjum?", "Hvernig eru jólin hjá þér og fjölskyldunni þinni?".
Verkefnið sem þau fengu var að komast að eins miklu og þau gætu um pennavininn á þessum stutta tíma, bæði í gegnum bréfaskriftirnar og það sem pennavinurinn skrifaði í Forum. Frásögn af pennavininum var síðan hluti af munnlegu prófi í lok áfangans. Þá voru innlegg þátttakenda einnig metin sem ritun.
Eins og gengur og gerist voru krakkarnir misjafnlega virk. Sum þeirra blómstruðu og áttu í mjög ánægjulegum samskiptum við pennavininn á meðan önnur gerðu rétt það allra nauðsynlegasta. Það sem við skipuleggjendurnir gerðum ef til vill rangt, var að við skilgreindum ekki samskiptaleiðir. Auðveldara hefði t.d. verið að meta ritunina ef allir hefðu notað vegginn í "Profile". Það var hins vegar mesta maus að þurfa að skrá sig inn sem hver og einn til þess að meta það sem þau höfðu skrifað í tölvupósti. En allt í allt var þetta verkefi vel heppnað og skemmtilegt.
Svona í lokin - Einn nemanda minna var að leiðrétta tímaritgerð á þýsku um kvikmynd sem krakkarnir mínir höfðu horft á. Hann átti í smá vandræðum með nokkrar setningar og snéri sér því til pólskrar stúlku, sem var áberandi góð í þýsku, og bað hana um að hjálpa sér. Hann skrifaði langa útskýringu á málinu á ensku. Þegar sú pólska skrifaði til baka á þýsku og sagðist því miður ekki skilja neitt í ensku, varð drengurinn svo undrandi að hann kom til mín og sagði mér frá öllu saman. - En lærdómurinn sem strákarnir í hópnum drógu af verkefninu var: "Ef þú vilt skrifast á við sætar stelpur í útlöndum, verður þú að kunna þýsku".
Með góðum kveðjum að austan frá Sigrúnu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 15. desember 2011
Kynningar af ráðstefnunni
Kynningar af ráðstefnu eTwinning á Menntavísindasviði HÍ á föstudaginn eru aðgengilegar hér.
Hilda Torres og nemendur hennar úr Versló:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 12. desember 2011
Úrslit í landskeppni eTwinning - Hofsstaðaskóli og Versló
Verðlaun í landskeppni eTwinning fyrir verkefni starfrækt á síðasta skólaári (2010-11) voru veitt á ráðstefnu eTwinning sem haldin var á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð á föstudaginn var.
11 skólar tóku þátt en samtals voru 15 verkefni skráð til keppni.
Sigurvegarar voru Hofsstaðaskóli, með verkefnið Give me a hug! og Verzlunarskóli Íslands með How´s life over there? Y tú ¿Cómo vives? Verðlaunin voru ekki af verri endanum - gjafabréf að andvirði 150 þúsund kr. í Tölvulistanum.
Á myndinni gefur að líta verðlaunahafana, Ragnheiði Stephense, Hofsstaðaskóla, og Hildu Torres, Versló, ásamt Guðmundur I. Markússyni, verkefnisstjóra eTwinning.
Umsögn dómnefndar um verðlaunaverkefnin:
Hofsstaðaskóli - Give me a hug!
Þetta verkefni er stórkostlegt í einfaldleika sínum. Bangsinn Columbus ferðast á milli landa og kynnir sér þjóð og staðhætti í hverju landi. Áhugavert er að sjá hve vel kennurunum hefur tekist að halda áhuga og virkni barnanna þrátt fyrir allan fjöldann sem stendur að verkefninu en í því taka þátt 23 skólar frá 21 landi. Verkefnið lifir góðu lífi og nemendur Hofsstaðaskóla eru þar enn virkir þátttakendur. Verkefnið er frábært dæmi um hvernig gera má kennsluna skemmtilegri og vekja áhuga barna á landafræði, menningu og upplýsingatækni með skapandi skólastarfi. Hér er á ferðinni gott dæmi um hvernig gera má námið spennandi á liflegan og gagnvirkan hátt. Hlutur nemenda og upplýsingatækni er umtalsverður. Kærleikurinn skín í gegn og er það ekki einmitt tilgangur eTwinning að brjóta niður hugsanlega múra á milli landa með heilbrigðum og gefandi tengslum á milli skóla og ólíkra menningarheima?
Verzlunarskóli Íslands - How´s life over there? Y tú ¿Cómo vives?
Þetta verkefni miðar að því að gera tungumálakennslu meira skapandi og áhugaverða. Verkefnið er samstarfsverkefni tveggja skóla og er greinilegt að mikil vinátta hefur myndast á milli þeirra kennara sem að verkefninu koma. Nemendur læra spænsku og skila verkefnum sínum á því tungumáli. Þetta er spennandi verkefni, vel útfært og skipulagt. Verkefnið er metnaðarfullt, hlutur upplýsingatækni og nemenda er til fyrirmyndar og greinilegt að nemendur hafa gaman af kennslu og námi. Verkefnið hefur staðið yfir frá skólaárinu 2007-2008 með nýjum nemendum ár hvert. Aldur verkefnisins er til merkis um lífvænleikann og gjarnan mætti bjóða fleiri framhaldsskólum að taka þátt. Með því mætti auka fjölbreytni og skapa áhugaverða breidd. Verkefnið er gott dæmi um hvernig eTwinning getur auðgað nám nemenda á einfaldan og skemmtilegan hátt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. desember 2011
Kynning í Akurskóla
Í dag var ég með eTwinning kynningu í Akurskóla í Reykjanesbæ. Það var mjög gaman að fræða samstarfsfólk mitt um ágæti eTwinning og vonandi munu margir taka þátt í skemmtilegum eTwinning verkefnum á næstunni.
Kveðja,
Guðný Ester
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 25. nóvember 2011
Að lokinni Brusselferð
Þetta var sem sagt skemmtleg og gagnleg ferð og við þökkum kærlega fyrir okkur.
Inga Rósa og Íris MjöllBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. nóvember 2011
Hrísey heimsótt sem og hús tekið á Mývetningum
Góðan daginn,
Í gær miðvikudag renndi ég á Árskógströnd og tók ferjuna út í Hrísey þar sem tekið var á móti mér með kostum og kynjum. Ég tók 8 ára dóttur með í ferðina því að svona ævintýri lét hún ekki renna sér úr greipum.
Við komum í Hrísey rétt fyrir klukkan 14 og hófst kynning á E-twinning í kjölfarið en stúlkan fór á leikskólann þar sem vistunin er og lék hún sér þar við börnin sem voru á staðnum.
Í dag fór ég í Mývatnssveitina og var sama uppi á teningnum þar, kennarar almennt ánægðir að fá kynningu í heimahús.
Á báðum stöðum var kynningin í formi fyrirlestrar með mjög virkum kennurum sem spurðu um allt á milli himins og jarðar eftir því sem leið á kynninguna. Í Hrísey gafst tími til að taka verklega æfingu og svo skráðum við okkur inn á svæðið og Hríseyjarskóli skráði sig í gagnagrunninn. Við gleymdum reyndar að fá prest til að blessa skráninguna en gerum það síðar. Á Mývatni var kynningunni þrengri tímarammi skorðaður og stukkum við yfir verklegu kennsluna en við fórum þess í stað í skráningu á svæðið.
Margar og gagnlegar spurningar vöknuðu á báðum stöðum. Ég er ekki frá því að Hrísey og Mývatn eiga eftir að blómstra í e-twinning því að umhverfi beggja skólanna er þess eðlis að auðvelt er að búa til verkefni í líffræði og deila því með Evrópu.
Mér finnst yfir höfuð kennarar taka þessum kynningum fagnandi og er ánægt að þurfa ekki að sækja fundi og kynningar yfir langan veg. Þessi þjónusta, sérstaklega til handa fámennari skólum, er sérstaklega ánægjuleg og gaman að fá að taka þátt í þessu átaki. Maður verður bara að vona að kennarar láti hendur standa fram úr skálmum og skrái sig, finni eða stofni verkefni og vinni svo til verðlauna..
þangað til næst... Bibbi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. nóvember 2011
Mentor - Island 2011
Heil og sæl eTwinnarar,
ég vil minna á spjallstofuna Mentor - Island 2011. Þar er hægt að fá góð ráð og aðstoð við allt sem við kemur eTwinning. Rétt í þessu var ég til dæmis af gefnu tilefni að uppfæra leiðbeiningar um það hvernig kennarar skrá nemendur sína í verkefni á eTwinning. Til þess að fá aðgang að spjallstofunni þarf að smella á "Join Room".
Með góðum kveðjum að austan, Sigrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. nóvember 2011
eTwinning ráðstefna í Brussel 17. - 19. nóvember 2011
Fréttir frá eTwinning ráðstefnu í Brussel 17 19. nóvember 2011.
Fulltrúar Íslands: Íris Mjöll Ólafsdóttir frá Menntaskólanum í Kópavogi, Inga Rósa Þórðardóttir frá Foldaskóla í Reykjavík. Þátttakendur eru 95 talsins frá 22 Evrópulöndum.
Ráðstefnan hófst með hvatningarráðu Kevins McCabe rá Liverpool þar sem hann benti kennurum á nauðsyn þess að opna heiminn fyrir nemendum. Hann líkti veröld okkar við kassa sem fram til þessa hefði verið frekar lítill og heldur lokaður. Það væri hins vegar hlutverk kennara nú á tímum að opna kassann og hjálpa nemendum að fóta sig í nýrri veröld með nýrri tækni. Á fyrsta degi ráðstefnunnar var að öðru leyti lögð mikil áhersla á að þátttakendur kynntust í gegnum hópefli og með leikjum af ýmsu tagi. Þátttakendur eru skrafhreifnir og félagslyndir og það sýndi sig ekki síst í kvöldverði þar sem margt var spjallað og skrafað. Hér eignast fólk nýja vini og skipuleggur verkefni með nemendum.
Meira á morgun, kveðjur frá Brussel,
Inga Rósa og Íris Mjöll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. nóvember 2011
Góð kynning í Brekkubæjarskóla
Sæl.
Í gær fór ég til Akraness til að kynna eTwinning í Brekkubæjarskóla. Stór hópur starfsmanna eða um 45 manns hlýddu á kynninguna og sýndu mikinn áhuga. Góðar spurningar voru bornar upp sem leiddu til umræðu um ágæti eTwinning sem samstarfsvettvangs. Það er gaman að segja frá því að þegar ég kom heim frá Akranesi beið mín vinabeiðni í eTwinning frá nýjum notanda í Brekkubæjarskóla og í dag barst mér önnur þaðan. Þetta kallar maður góð viðbrögð!
Bestu kveðjur,
Guðný
Bloggar | Breytt 18.11.2011 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. nóvember 2011
Kynningar halda áfram
Góðan daginn,
í dag var kynningarherferðinni á Norðurlandi beint að Grenivík þar sem mér var boðið að koma á kennarafund sem ég og gerði. Vel var tekið á móti mér og voru kennarar á Grenivík afar áhugasamir og spurðu mikið út í verkefni og fleira. Grenivíkurskóli hefur ekki verið í e-twinning en eftir þessa kynningu sem ekki var haldin fyrir daufum eyrum kæmi mér ekki á óvart að sjá Grenivíkurskóla í gagnagrunni kerfisins.
Grenivíkurskóli er dæmigerður skóli að mínu mati fyrir e-twinning, eini skólinn í bæjarfélaginu og langt að sækja samstarfsskóla í hin ýmsu verkefni sem skólanum liggja á hjarta. E-twinning kemur til með að stytta vegalengdir sem þarf að fara í samstarfið og vonandi verður samstarfið að sama skapi fjölbreyttara en ef nágrannaskólar taka sig saman um að vinna verkefni.
Ég vona að minnsta kosti að kynningin hafi skilað nógu miklu til að kennarar í skólanum kanni málið og fái mig þá e.t.v. í heimsókn aftur með verklega kennslu utan kerfis.
Þar til næst,
Bibbi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)