Miðvikudagur, 6. febrúar 2013
Ferðasaga eTwinning ferðalanga til Póllands 24.-28. okt 2012
Miðvikudagsmorguninn 24. október 2012 hittust 4 leikskólakennarar uppi í Leifsstöð. Við þekktumst ekki áður og var undirbúningurinn stuttur. Við höfðum samband í vefpósti og náðum að kynnast aðeins. Förinni var heitið til WrocÅ‚aw, Póllandi á eTwinning tengslaráðstefnu. Millilent var í Frankfurt, við fengum 8 klukkustundir í Þýskalandi. Farið var með lest inn í miðborgina og við vorum svo uppteknar af því að skoða í kringum okkur að við fórum inn í fyrsta farrými en ekki 2. eins og við höfðum borgað fyrir. Þegar lestarvörðurinn kom var okkur snarlega skuttlað yfir í annað farrými og fengum við að vita að við hefðum rétt sloppið við að borga sektina en hún hljóðar upp á 50 evrur per mann. Í Frankfurt fór ein á listasafn meðan hinar fóru í útsýnisferð um borgina. Fróðlegt var að sjá skýjakljúfana og eina stærstu viðskiptabyggingu Evrópu. Eftir langa göngu fengum við að borða en þá var kominn tími til að halda aftur út á flugvöll. Fórum í fokkervél LOT flugfélagsins. Við lentum í Póllandi um 21.30 og komumst við á Art Hótel á mettíma. Við ákváðum að taka leigubíl og sömdum við ungan bílstjóra um aksturinn, það gekk hratt fyrir sig við vorum komnar kl. tíu heim á hótel, en bílstjórinn keyrði ekki undir 120 km hraða, en það var frekar litil umferð. Við fengum góð herbergi og aðbúnaður var fínn. Um kvöldið fórum við í smá göngu, keyptum okkur drykki, prins polo og skoðuðum nánasta umhverfi.
Fimmtudagurinn byrjaði á flottum morgunmat og síðan var haldið á vit ævintýranna. Gengið var yfir á allar nærliggjandi eyjar en WrocÅ‚aw samanstendur af mörgum litlum eyjum og áin Oder rennur í gegnum Pólland. Við gengum yfir brú sem kallast The bridge of love en það er hefð í WrocÅ‚aw að hengja hengilás á brúnna í tilefni brúðkaups eða trúlofunar. Við gerðum tilraun til að ganga inn í eitt stærsta og elsta bókasafn Evrópu en þegar við loksins náðum að opna risa stóru hurðina var okkur hótað af öryggisverði með byssu ef við tækjum eitt skref í viðbót þá hlytum við verra af. Ákveðið var að fara ekki inn í fleiri byggingar en þegar við stóðum fyrir framan stóra kirkju stóðumst við ekki mátið og læddumst inn. Kirkjan var mjög falleg og margt um manninn þarna inni. Boðið var upp á útsýnisferð upp í turn. Farið var með eldgamalli lyftu, en útsýnið uppi var stórbrotið og alveg þess virði að dröslast upp. Ferðin niður gekk misvel fyrir gestina, en lyftuvörðurinn gjörsamlega fyllti hana af fólki. En hann gaf sig ekki og skellti í lás og brunaði niður en við fengum það hlutverk inni í lyftunni að róa einn einn kirkjugestinn sem grét á leiðinni niður. En allir komust líkamlega heilir niður. Eftir þessa för ákvað ein að fara í gönguferð um nærliggjandi garða en hinar kíktu í verslanir og var dagurinn fljótur að líða. En nú var komið af alvörunni.
Það voru um 60 manns á ráðstefnunni og var töluð enska. Íslendingarmir voru áberandi bestir í ensku. Það var gaman að kynnst fólkinu, Pólverjar í meirihluta. En þáttökulöndin fyrir utan Ísland voru Spánn, Portúgal, Lettland, Búlgaría, Ungverjaland, Slóvenía og Tékkland.
Við hittumst í ráðstefnusal Art Hótels, fengum ráðstefnugögn og kynningu á eTwinning teyminu og dagskránni. Eftir það var okkur skipt í litla hópa í verkefna vinnu sem skilaði fjölbreyttri og skemmtilegri kynningu hópanna. Hóparnir heldu sér alveg fyrsta kvöldið borðuðu saman og svo var haldið á pöbbarölt og mannlífið skoðað.
Föstudagurinn byrjaði snemma með morgunmat og að því loknu var hópnum skipt í tvennt. Annar fór í verkefna vinnu en hinn var í tölvukennslu á Desktopi og TwinSpace. Um hádegið var hópunum svo svissað, í verkefna vinnunni fór ýmislegt skemmtilegt fram. Íslendingarnir létu plata sig ýmist til að kynna verkefnin, lesa upp sögur eða að syngja. Enda með þeim sleipari í enskunni en margur annar þarna. Eftir mikla vinnu yfir daginn var farið í ratleik eða City games en megin tilgangurinn í ferðinni var að finna dverga sem faldir eru víðs vegar um bæinn. En dvergar úr bronsi prýða miðborgina. Farið var að kólna og fljótlega var farið að dimma svo það reyndist sumum hópum erfitt að klára leikinn en aðrir hlupu í gegnum þetta en voru reyndar sendir aftur út til að klára það sem upp á vantaði. Einhverjir hópar hreinlega svindluðu og skelltu sér á kaffihús. Íslendingarnir kláruðu að sjálfsögðu leikinn, með misgóðum árangri. Eftir leikinn var svo boðið upp á kvöldmat á Art Hóteli. Kíkt var aðeins út á mannlífið eftir það.
Laugardagurinn byrjaði einnig mjög snemma á morgunmat. Eftir matinn var farið yfir hvernig búa ætti til verkefni og sækja um þau á eTwinning vefnum. Eftir það var okkur gefið tækifæri til að finna félaga og ef við vildum búa til verkefni. Það tók dágóðan tíma en allir Íslendingarnir komu heim með verkefni og uppfullir af hugmyndum. En hægt er að vinna stutt eða löng verkefni og þróa þau. Spennandi er að vinna með leikskólabörnum og eru verkefni í vinnslu. Sumir voru uppteknir allan daginn við verkefnavinnu meðan aðrir voru að tapa sér yfir snjókomunni sem byrjaði fyrr um daginn, enda fyrsti vetrardagur. Ein var meira að segja að upplifa snjó í fyrsta skipti. Þegar degi var tekið að halla var hópurinn rekinn út í kuldann en nú átti að skoða bæinn. Hópnum var skipt í tvennt annar fór fótgangandi en hinn fór í Pram (sporvagna)ferð um miðbæinn. Það var orðið mjög kalt úti og dimmt svo ekki var útsýnið mikið. Eftir að hafa verið í klukkutíma Pram ferð í óupphituðum vagni var hópurinn orðinn ansi kaldur. Eftir smá umræður var ákveðið að stefna á veitingarstaðinn þar sem kvöldmaturinn átti að fara fram. Hópurinn sem byrjaði fótgangandi á heiður skilið að hafa klárað ferðina. Á veitingastaðnum fengum við heitt að drekka og stuttu seinna hófst borðhald. Boðið var upp á graskerssúpu og önd með pólskum hveitikartöflum . Setið var langt fram á kvöld borðað, drukkið, dansað, sungið og spjallað.
Það var einstök stemming þegar allir sungu sama Meistari Jakob og Höfuð, herðar, hné og tær með undirleik tónlistarfólks frá Ungverjalandi.
Það var erftitt að kveðjast og mörgum höfðum við kynnst vel. Þetta var frábær tími og var gaman að kynnast fólki frá Póllandi og öllum hinum löndunum.
Sunnudagurinn hófst um miðja nótt, en það voru þreyttir en glaðir Íslendingar með nesti í poka sem héldu af stað út á völl. Með þeim í för voru tvær konur frá Sloveníu en skemmtilegt vinasamband hafði myndast á milli okkar eins og fjölmargra annarra sem vonandi á eftir að haldast um ókomin ár.
Ferðin heim gekk mjög vel þrátt fyrir 5 tíma bið á vellinum.
Þegar ferðin er tekin saman erum við allar sammála um að þetta hafi verið fróðleg og skemmtileg ferð í alla staði. Lærðum mikið á hvernig eTwinnig getur bætt skólastarfið og víkkað sjóndeildarhring okkar allra.
Anna, Lilja, Oddný og Þóranna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. nóvember 2012
Fréttir frá Aþenu
Ég var svo heppin að fá að taka þátt í PDW-námskeiði fyrir eTwinning fulltrúa í Aþenu núna um miðjan nóvember. Ferðin var bæði ánægjuleg og lærdómsrík. Hótelið okkar var við rætur Acropolis hæðarinnar og við höfðum tíma til að rölta þar um og lifa okkur inn í lífið í Aþenu til forna. Þá var einnig skipulögð heimsókn á Acropolis safnið þar sem mikið af höggmyndum og freskum frá klassíska og forklassíska tímabilinu er varðveitt.
Á námskeiðinu tókum við þátt í fjölda góðra vinnustofa og sóttum áhugaverðar kynningar sem fjölluðu allar á einhvern hátt um "E-learning" . Með aukinni áherslu á breytta kennsluhætti, nýtingu upplýsingatækni og þeirra tækja og tóla sem nemendur vilja helst nota og hugmyndum um "viðsnúna kennskustofu" eða " flipped classroom", mun skólastarfið að einhverju leiti færast í auknum mæli á netið. Við kennarar þurfum þess vegna að fylgjast vel með nýjungum sem auðvelda okkur þennan "viðsnúning". Ég ætla hér á eftir að spjalla aðeins um þær lausnir sem mér þótt hve athygliverðastar á námskeiðinu.
Hugmyndin að baki "flipped classroom" - http://www.flippedclassroom.com/index.php er innlegg á netinu, verkefnavinna í kennslusfotunni, líkan sem er að ganga mjög vel hjá Norðlingaskóla. Þar á bæ eru bæði kennarar og nemendur vopnaðir iPad og nota forrit sem nýtast aðallega og oft aðeins fyrir þær vélar. Á námskeiðinu í Aþenu var hins vegar fjallað um forrit sem hægt er að keyra á allar vélar.
- Til að taka upp það sem fram fer á tölvuskjá ásamt rödd kennarans og uppfæra á vefnum sem myndband:
- Það forrit sem hér virðist vera sett í fyrsta sæti er Camtasia. Camtasia þarf hins vegar að kaupa. Ef það er ekki til í skólanum ykkar þá var mælt með "Screen-O-Matic: http://www.screencast-o-matic.com/. Hægt er að taka upp skjáinn og rödd en einnig í gegnum vefmyndavél. Boðið er upp á fría hýsingu en hvert myndskeið má ekki vera lengra en 15 mínútur. Þá er formið einnig samhæft YouTube og hægt að uppfær beint. Ég hef sjálf prufað þetta forrit og það virkar fínt.
- Glogster og Glogster EDU:
- Skemmtilegt ókeypis forrit til þess að gera teiknimyndasögur. Ókeypis hýsingu á vefnum. "Glog" er eins og gagnvirkt póstkort eða plakat sem getur innihaldið myndir, teikningar, tónlist, tal, vídeo, og texta. Glogster EDU http://edu.glogster.com/what-is-glogster-edu/ er sérsniðið fyrir skólastofuna, kennslu og nám en einnig frítt. Því fylgir sérstök rafræn kennslustofa sem aðeins kennarinn og nemendurnir hafa aðgang að og sitthvað fleira. Á námskeiðinu sýndi kennari frá Portúgal hvernig hún notaði Glogster til þess að auka virkni og áhuga slakari nemenda. Einnig var talað um ComicLab sem er frábært forrit til þess að búa til gagnvirkar teiknimyndasögur. Það kostar þó töluvert - 45 dollara fyrir einta tölvu í 12 mánuði, 650 fyrir skóla með ótakmarkaðri notkun.
- Til að senda út eða streyma út kennslu eða viðburði í rauntíma:
- Hér virðist Acobe Connect vera í uppáhaldi. Það virkar mjög vel en er nokkuð dýrt. Fjarnemar eða þátttakendur sem sitja heima við tölvuna geta komið með spurningar og innlegg. Að sögn kynnanda tekur forritið ekki upp samtímis og það streymir út. Microsoft Lync er annað frábært fjarfunda- og fjarkennsluforrit. Ég hef sjálf unnið í því á tölvunámskeiði sem ég tók hjá Promennt. Skjánum er skipt í tvo helminga. Á öðrum helmingnum gat ég fylgst með því sem kennarinn sendi á tjaldið úr tölvu og á hinum helmingnum sá ég kennarann og það sem gerðist fremst í kennslusfotunni. Ég heyrði einnig vel í kennaranum og þátttakendum á staðnum. Lync fylgir með Microsoft Office Pro Plus 2010 http://office.microsoft.com/en-us/professional-plus/en annars þarf að kaupa það. http://lync.microsoft.com/en-us/Pages/unified-communications.aspx. Google Hangout er notað í auknum mæli til fjarfunda og fjarkennslu. Þar er kominn nýr "fidus" On Air sem gefur möguleika á að streyma út viðburði í gegnum vefmyndavél. Ókeypis eins og allt sem viðkemur Google.
- Google Forum
- Einn kennari sýndi hvernig hún notar Google Forum til þess að kanna hvort nemendur hlusta á innlegg sem hún setur á vefinn. Vert að kynna sér þetta forrit. Það er notað til minni viðhorfskannana en gefur ekki eins marga möguleika á úrvinnslu eins og t.d. SurveyMonkey. En - frítt!
- WallWisher - gagnvirk tafla á netinu
- Auðvelt, skemmtilegt - og FRÍTT. Þú stofnar "vegg" og sendir eða gefur nemendum slóðina. Þeir þurfa ekki einu sinni aðgangsorð, því slóðin liggur aðeins að veggnum sem þú vart að búa til. Nemendur smella á vegginn og segja skoðun sína eða setja inn mynd eða vídeó. Frábært fyrir hugarflæði (brain storming), til að skrifa saman sögu eða segja frá niðurstöðum hópvinnu. http://wallwisher.com/ Kennslumyndband: http://www.youtube.com/watch?v=fAEc_6QfhT8&feature=related
Vona að einhver hafi gagn og gaman af þessari stuttu samantekt. - En ferðin var stórkostleg, Aþena falleg, veður þægilegt og góðir ferðafélagar. Auk þess kynntumst við skemmtilegu fólki frá mismunandi löndum sem við munum halda sambandi við á eTwinning.
Takk fyrir mig - og góðar kveðjur að austan,
Sigrún Egilsstöðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. nóvember 2012
Maths and ICT
Haldið í Lissabon, Portúgal, dagana 31. maí 2. júní 2012.
Þátttakendur: Laufey Einarsdóttir og Róbert Haraldsson
Í vor fórum við á námskeiðið Maths and ICT sem var símenntunarvinnustofa á vegum eTwinning fyrir stærðfræðikennara á grunnskólastigi. Þátttakendur voru 105 talsins frá 27 Evrópulöndum, bæði byrjendur og lengra komnir í eTwinning samstarfi. Námskeiðinu var skipt í tvennt; annars vegar var kynning og kennsla á eTwinning og hins vegar fyrirlestur um stærðfræði og tölvur og vinnustofur.
Richard English kennari við menntavísindasvið Háskólans í Hull hélt inngangsfyrirlestur fyrir seinni hluta námskeiðsins og fjallaði hann um að nota tölvu- og upplýsingatækni á skapandi hátt í stærðfræði fyrir grunnskólanemendur (Use ICT Creatively in Primary Mathematics). Fimm áhugaverðar vinnustofur tengdar stærðfræði og tölvum voru í boði. Þær voru Robotics, Scratch, Stærðfræðileikir á netinu, JClic og Microsoft Tools for Primary Schools (Kodu og Mouse Mischief). Þar voru kynnt mörg áhugaverð forrit sem hægt er að nota í stærðfræðikennslu, eini gallinn fyrir okkur Íslendinga er að forritin eru á ensku. Samt forvitnilegt og spennandi.
Aðstaðan á námskeiðinu var mjög góð þrátt fyrir erfiðleika með nettengingar fyrsta daginn sem setti námskeiðshald nokkuð úr skorðum. Vinnustofurnar voru í styttra lagi, sérstaklega þar sem mikill tími fór stundum í tæknimálin. Það var samt sem áður mjög vel haldið utan um þátttakendur; farið var í eina menningarferð og var allur matur og drykkir í boði þann tíma sem námskeiðið stóð yfir.
Að okkar mati var líklega mesti ávinningurinn í þessari ferð að hitta kennara frá öðrum löndum og ræða um nám og kennslu, deila hugmyndum, segja frá náms- og kennsluháttum á Íslandi o.s.frv. Við höfum auk þess eflst við að nota stærðfræðiforrit í kennslu og erum í sambandi við kennara í öðrum Evrópulöndum. Við hlökkum til að læra með öðrum og vinna eTwinning-verkefni á næstu árum. Án efa, lærdómsrík ferð frá mörgum sjónahornum séð, ferð sem við hefðum ekki viljað missa af.Bestu kveðjur, Laufey og Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. júní 2012
Hvað gerir okkur hamingjusöm?
Komið þið sælir lesendur góðir.
Jóhann Björnsson heiti ég og kenni við Réttarholtsskóla. Ég sótti etwinning tengslafund í Reims í Frakklandi í lok maí. Ég hafði hug á því að reyna að komast í samstarf við fólk sem væri að fást við heimspeki, siðfræði, gagnrýna hugsun eða samræður í kennslustundum. Ekki var að finna fólk sem var á þessari línu þannig að það var ekki ýkja bjart útlitið til að byrja með. En þegar við fórum að ræða saman og skoða málin þá duttum við fjögur niður á spennandi verkefni sem heimspekikennari úr Réttó var afskaplega sáttur við. Verkefnið heitir á ensku: "What makes me happy?" Gengur það út á að skoða hamingjuhugtakið með nemendum í fjórum skólum í þremur löndum. Kennararnir eru enskukennarar, einn frá Finnlandi (Lapplandi) og tveir frá Frakklandi auk mín. Enskukennarnar voru meira en fúsir til að fara í svona heimspekilega vinnu enda sögðust þeir vel geta fjallað um hvað sem er á ensku. Verkefnið mun verða unnið allan næsta vetur í einum hópi við Réttarholtsskóla. Það verður ákveðið í haust hvaða hópur verður fyrir valinu. Lokamarkmið verkefnisins eftir ákveðið ferli er að nemendur komi með sína eigin skilgreiningu á hamingju og þannig getum við séð hvort hamingjuhugtakið er sambærilegt í þessum þremur löndum og fjórum skólum.
Þeir sem vilja forvitnast um framgang verksins geta sett sig í samband við mig með tölvupósti johannbjo@gmail.com. Fréttir af verkefninu verður hægt að finna í haust og næsta vetur á vefslóðinni http://heimspekismidja.wordpress.com
Jóhann Björnsson
Bloggar | Breytt 12.6.2012 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 29. maí 2012
eTwinning á "Akurfundi" í Fellaskóla
Þann 7. maí síðastliðinn var ég beðin um að vera með sambland af eTwinning kynningu og námskeiði á "Akurfundi" í Fellaskóla á Fljótsdalshéraði. Fellaskóli er framsækinn skóli með rúmlega hundrað nemendur og 18 kennara. Skólinn er staðsettur í Fellabæ, gegnt Egilsstöðum norðan Lagarfljóts. Á Héraði háttar svo til að þar eru aðeins þrjár höfuðáttir, austur, suður og norður. Þegar farið er frá Egilsstöðum yfir í Fellabæ er farið norður yfir fljót. Til baka er síðan farið austur yfir fljót til Egilsstaða. Í Fellaskóla er unnið metnaðarfullt starf undir styrkri stjórn Sverris Gestssonar skólastjóra. Hefur hann sér til fulltingis einvala lið kennara. Sérstaða Fellaskóla felst í mjög nánu samstarfi við tónlistarskólann sem hefur aðsetur sitt í skólabyggingunni. Geta nemendur farið úr hefðbundnum kennslutímum í tónlistartíma, réttar sag þá sækir tónlistarkennarinn nemendur úr kennslutíma þegar´(honum) hentar. :) Ég mætti nokkuð tímanlega á "Akurfundinn" til þess að ganga úr skugga um að allar tengingar virkuðu og gott tölvusamband væri í fundaherberginu. Þegar ég steig út úr bílnum barst taktföst rokktónlist á móti mér. Voru þar nokkrir nemendur á söngæfingu. Nokkru síðar var "hringt út" úr síðastu kennslustund dagsins. Það var auðvitað engin venjuleg bjölluhringing heldur grípandi rokkstef.
Á kennarastofunni hitti ég fyrir nokkra fyrrverandi úrvals nemendur úr ME sem hafa valið sér það hlutverk í lífinu að hjálpa yngri kynslóðum til þroska. Ég man auðvitað sérstaklega vel eftir þessum nemendum vegna þess að þeir voru allir mjög "góðir í þýsku". Enginn þeirra kennir þó tungumál heldur hafa þeir yfirleitt allir sérhæft sig í raungreinum. - "Akurfundurinn" gekk mjög vel enda var hópurinn lifandi og skemmtilegur. Ég kynnti fyrst eTwinning í hnotskurn. Síðan hjálpaði ég hópnum við innskráningu en það er nokkuð sem hefur orðið svolítið útundan hjá mér bæði í kynningum og eins á námskeiðum. Eftir að innskráningu var lokið, fórum við í gegnum hefðbundnar "Desktop" æfingar sem við gerum annars í æfingarforritinu. Þátttakendur funndu hvern annan, sendu vinarbeiðnir og "ödduðu" hver öðrum eins og krakkarninr segja, sendu tölvupóst, skoðuðu auglýsingar um samstarfsaðila og verkefnabankann.
Það hefur komið mér nokkuð á óvart í þessum skólaheimsóknum hér fyrir austan hve fáir kennarar eru skráðir á eTwinning. Og hve fáir vita yfirleitt hvað eTwinning er. Í Fellaskóla var til dæmis enginn kennari skráður á eTwinning fyrir 7. maí. Allir sem mættu á "Akurfundinn" skráðu sig og sýndu mikinn áhuga. Ég vona að þeir finni verkefni fyrir haustið sem fellur vel inn í kennsluna hjá þeim og getur lífgað upp á starfið með nemendum. Fyrir Fellaskóla væri líka tilvalið að fara í þverfaglegt verkefni sem tengdist tónlist.
Með sólskinskveðjum að austan frá Sigrúnu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1. maí 2012
Brüsssel 19.-20. apríl 2012. Námskeið um gagnvirkar rafrænar kennslutöflur.
The future classroom Lab course. Making the most of your interactive whiteboard.
Námskeið haldið í Brüssel 19.-20. apríl 2012.
Ég heiti Ólöf Björk Bragadóttir og kenni listgreinar við Menntaskólann á Egilsstöðum auk þess að sjá um hin ýmsu námskeið fyrir ólíka hópa fólks fyrir Þekkingarnet Austurlands í listum og menningu. Ástæða fyrir skrifum mínum hér er sú að nú fyrir stuttu tók ég þátt í mjög áhugaverðu námskeiði The future classroom Lab course. Making the most of your interactive whiteboard sem var á vegum Europeean Schoolnet og Alþjóðakrifstofu HÍ.
Námskeiðið var haldið í Brüssel nú 19. 20. apríl og við þátttakendurnir vorum alls 18 talsins frá hinum ýmsu löndum Evrópu og flestir kennarar.
Auk okkar Helgu Hönnu Þorsteinsdóttur sem komum héðan frá Íslandi voru; tveir fulltrúar frá Portúgal, sem bæði eru menntaðir grunnskólakennarar en vinna nú við að kenna háskólakennurum í Portúgal nýjar kennsluaðferðir, þrír Frakkar sem kenna á mismunandi skólastigum, leikskóla, grunnskóla og einn þeirra kennir bókmenntir í framhaldsskóla. Þá voru þrír kennaranna frá Póllandi og tveir frá Litháen, tveir frá Lettlandi, tveir frá Spáni og einn frá Belgíu. Tveir þátttakenda voru frá Kýpur en þeir voru aðallega að skoða nýjustu tækni í kennslumálum og í innkaupahugleiðingum fyrir skólakerfið á Kýpur.
Mig hefur lengi langað að nýta mér þær rafrænu töflur sem eru til í Menntaskólanum á Egilsstöðum þar sem ég kenni listgreinar. Ég var því ánægð með að vera valin úr hópi umsækjenda ásamt Helgu Hönnu Þorsteinsdóttu leikskólakennara í Furugrund Kópavogi til að taka þátt í þessu námskeiði og sá þarna kjörið tækifæri til þess að geta nú loksins farið að nýta þessar fínu töflur sem ég hef aðgang að. Þar sem ég hlaut menntun mína í École supérieure des Beaux Arts í Montpellier og bjó því í Frakklandi í 9 ár gat ég nú vel nýtt frönskukunnáttu mína í ferðinni en þó fór námskeiðið sjálft fram á ensku.
Móttökur voru með ágætum og kennari námskeiðsins Diana Bannister var einstaklega skipulögð og góð í sínu fagi. Hún kennir við Háskólann í Wolwerhampton í Englandi. Námskeiðið var mjög áhugavert og hnitmiðað, en farið var í helstu atriði hvað varðar notkun rafrænna kennslutaflna og mismunandi tækni og áhugaverðar aðferðir í því sambandi kynntar til sögunnar.
Við skoðuðum meðal annars hvernig hægt er að útbúa gagnvirkt kennsluefni á netinu, lærðum um notkun á ýmsum tækjum og tólum í WB(White Board) tækni, t.d. hvernig maður setur inn hina ýmsu linka, myndbönd, ljósmyndaseríur, texta, teikningar, hreyfimyndagerð og ýmislegt fleira. Einnig fengum við að kynnast nýjustu tækni í kennsluaðferðum í framtíðar kennslustofunni þar sem námskeiðið var haldið. Áhugaverður punktur á námskeiðinu var þegar við fórum að teikna upp kennslutofuna okkar og átta okkur á uppröðun, tækjum og tólum. Hvað fannst okkur vera að virka og hvernig mætti bæta aðstöðuna. Ég tel mjög mikilvægt að umhverfið sé í samræmi við þarfir nemenda og kennara og því var þetta þörf og áhugaverð umræða.
Kennslugögn voru mjög góð og nú þegar hef ég deilt þeim á sameign í mínum skóla öðrum kennurum til glöggvunar. Einnig var okkur bent á ýmsar greinar og linka sem gætu auðveldað okkur frekari þjálfun í notkun rafrænna taflna. Ef þið hafið áhuga á að kynna ykkur námsefni og annað síkt þá vil ég benda á eftirfarandi linka:
http://lreforschools.eun.org
nRich
Mimio
Diana Bannister, kennari og skipuleggjandi námskeiðsins gat jafnvel hugsað sér að koma að frekara námskeiðahaldi hér á landi í framtíðinni og þegar við Helga Hanna nefndum það við hana að það væri þörf á slíku hér á landi þá sýndi hún því mikinn áhuga. Ég hvet þá sem áhuga hafa að setja sig í samband við hana en hér að neðan eru upplýsingar um hana:
Diana Bannister MBE
Development Director for Learning Technologies
School for Education Futures
University of Wolverhampton
United Kingdom
DianaBannister@wlv.ac.uk
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort flestir eða allir skólar séu nú þegar farnir að nota rafrænar kennslutöflur og því væri gaman að heyra frá ykkur hinum, hvernig og hvort þið notið þær og hvort við getum ekki deilt reynslusögum af því.
Að lokum við ég þakka samferðakonu minni Helgu Hönnu Þorsteinsdóttur góðar samverustundir þessa fjóra áhugaverðu daga en auk námskeiðsins náðum við að skoða okkur um í borginni, smakka súkkulaðið og kíkja á markaðinn okkur til skemmtunar. Þá sáum við að sjálfsögðu Magritte í "Beaux Arts" safninu og hús hins fræga Art nouvaeux arkitekts og listamanns, Victor Horta. Það var stórkostleg upplilfun. En skemmtileg tilviljun er að nemendur mínir í listum og menningu voru einmitt að fjalla um það tímabil listasögunnar sömu vikuna. Hótelið þar sem við þátttakendur dvöldum á, Hotel Husa President Park var til fyrirmyndar svo og allur aðbúnaður þar og í kringum námskeiðið sjálft. Við Helga Hanna höfum áhuga á frekara samstarfi og mikill áhugi var á eTwinning verkefnum meðal þátttakendanna. Við ætlum einmitt öll að deila reynslusögum af notkun rafrænu taflnanna í skólunum okkar og reyna að nýta þessa frábæru tækni meira. Nú þegar er búið að búa til spjallhóp á netinu í tengslum við hópinn. Ég vil ég þakka Guðmundi Inga Markússyni, verkefnisstjóra Alþjóðaskrifstofu Háskólastigsins, fyrir vel skipulagða ferð og undirbúning en allt gekk upp eins og best varð á kosið. Nú er bara að hefjast handa, fara að æfa sig og nýta þessa skemmtilegu viðbót í kennslustofu framtíðarinnar.
Ólöf Björk Bragadóttir, Listgreinakennari ME obb@me.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27. apríl 2012
PDW í Gautaborg
Evrópsk vinnustofa fyrir sjúkrahúskennara var haldin 19.-21.apríl sl. í Gautaborg. Við fórum héðan fjórir kennarar á Landspítalnum við Hringbraut og Dalbraut. Þarna voru mættir ca. 50 kennarar frá 24 Evrópulöndum. Vinnustofan var vel skipulögð, fróðleg og skemmtileg. Allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Fyrst fór fram kynning á eTwinning í fyrirlestraformi síðan voru kennarar leiddir áfram skref fyrir skref í því hvernig hægt er að vinna með eTwinning. Mikil áhersla var lögð á það að fólk kynntist innbyrðis. Ný forrit voru kynnt, hvernig þau nýtast við kennslu og hvernig samstarfið getur farið fram í tölvum á milli landa. Uppskriftin er til staðar, það er bara að nota það sem stendur til boða. Auk eTwinning kynningarinnar var boðið upp á áhugaverða heimsókn í Agrenska sjúkrahúsið, fyrir langveik börn, og fór þar fram kynning á starfseminni. Við hittum margt skemmtilegt fólk og fundum samstarfsaðila í Finnlandi, Svíþjóð, Póllandi og Portúgal. Við heimkomu fengum við jákvæð viðbrögð frá samstarfsfólki og nemendum okkar. Við getum því mælt með þessu evrópska samstarfi.
Lilianne og Magnús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. apríl 2012
eTwinning námskeið í Hallormsstaðaskóla
Um páskana hafði skólastjóri Hallormsstaðaskóla, Íris Randversdóttir samband við mig og spurði hvort ég væri til í að vera með eTwinning námskeið á starfsdegi kennara við skólann, þriðjudaginn 10. apríl. Ég lagði af stað úr Fellabænum í suddaveðri en keyri inn í þokkalegasta vorveður á Vallahálsinum þar sem oft eru veðraskil. Hallormsstaðaskóli er lítill og heimilislegur skóli. Nemendur á þessu skólaári eru samtals 52 og 11 á leikskólastigi. Hallormsstaðaskóli hefur tekið virkan þátt í Evrópusamstarfsverkefnum undanfarin ár, bæði Comeniuis og eTwinning verkefnum. Sem stendur er skólinn þátttakandi í Comenius verkefninu: Different Languages - Same Speech". Sjá:
http://differentlanguages-samespeech.blogspot.com/
Alls tóku 8 kennarar þátt í námskeiðinu, þar af einn frá Leikskólanum Skógarseli á Hallormsstað. Við notuðum æfingasvæðið - eTwinning -Training- Net - sem er alveg frábært. Þátttakendur voru mjög áhugasamir og áttu í engum vandræðum með að leysa verkefnin. Að lokum voru allir meira að segja búnir að "embedda" myndbandi af YouTube inn á TwinSpace, en þá finnst mér að menn séu orðnir svo til "fullnuma". Það er líka alltaf góð tilfinning þegar þátttakendur eru farnir að hjálpa hver öðrum. :) Markmiðið með námskeiðinu var að fá fleiri kennara við skólann til þess að taka virkan þátt í erlendu samstarfi. Miðað við áhugann, er ég viss um að það muni takast.
Að námskeiðinu loknu var mér boðið í ljúffengan hádegisverð í mötuneyti skólans þar sem margt var spjallað og spekúlerað. Þetta var í alla staði hin ánægjulegasta heimsókn í "Skóginn".
Með góðum kveðjum að austan,
Sigrún Árnadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. mars 2012
Áhugaverð myndbönd af ráðstefnu 3f á föstudaginn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 10. mars 2012
eTwinning námskeið í Menntaskólanum á Egilsstöðum
Í gær, föstudaginn 9. mars, var haldið vel heppnað eTwinning námskeið í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Ég hafði ekki búist við mjög mörgum þátttakendum, sjö höfðu tilkynnt þátttöku og tveir þeirra boðuðu forföll snemma morguns þann níunda. Því þóttist ég góð, búið að uppfæra Chrom á 12 tölvur í tölvuveri skólans og búin að ljósrita 10 eintök af verkefnunum. Það kom því skemmtilega á óvart að mun fleiri mætt til leikst en höfðu skráð sig og varð meira að segja einn frá að hverfa. Ég hef sjálf ekki administrator aðgang að tölvunum í tölvuveri ME og gat því ekki uppfært Chrome á eina tölvu í viðbót án leyfis Magga tölvukarls og þúsundþjalasmiðs sem var farinn af svæðinu. Því fór sem fór. Þetta var samstarfskona mín hér við ME og get ég bætt henni það upp seinna. Þátttakendur voru flestir frá Egilsstöðum, fjórir kennarar frá grunnskólanum hér, Egilsstaðaskóla, einn frá Brúarásskóla, tveir komu alla leið frá Djúpavogi og fimm frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Hópurinn var virkur og skemmtilegur. Flestir höfðu verið á eTwinning kynningu og því fórum við beint inná Desktop í æfingaforritinu. Þátttakendur fundu samstarfsaðila sinn og stofnuðu áhugaverð eTwinning verkefni. Síðan virkjuðu þau öll þau tæki og tól sem þau fundu á TwinSpace, uppfærðu myndir á Wikisíðurnar sínar með Chrom, sem er bæði fljótlegt og þægilegt, og "embedduðu" myndböndum af YouTube. Tíminn leyfði ekki að ég færi í widgets, en námskeiðið stóð frá kl. 14 - 17. Æfingarforritið virkaði allt sem skyldi og nöfnin, sem þau Guðmundur Ingi og Sigga Vala höfðu gert fyrir okkur fótgönguliðana, stóðust öll. Eftirá að hyggja finnst mér þó að 12 þátttakendur á einn leiðbeinanda sé algjört hámark. Það bjargaði málum á þessu námskeiði hve opinn og virkur hópurinn var og allilr tilbúnir að hjálpa næsta manni. Stundum hafði ég þó á tilfinningunni að sumir hefðu þurft að bíða aðeins of lengi eftir aðstoð. En þetta var voðalega gaman. Ég hafði hellt uppá kaffi og keypt kleinur og kex sem mannskapurinn gat styrkt sig á við og við og það var mikið spjallað og spekulerað.
Með góðum kveðjum að austan frá Sigrúnu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)